Bubbi í útvarpinu

Hluti af ökukennaranáminu mínu er að skila 28 tímum í ökuskóla, 14 tímum í áheyrn og 14 í kennslu. Í kvöld, mánud.kvöld var fyrsta mæting hjá mér í Ökuskóla Austurlands, en kennslan fer fram í Fellabæ, sama húsnæði og "Svarthvíta hetjan" pöbbinn, var til húsa á sínum tíma. Tæplega 30 ökunemar voru mættir og koma þeir sennilega af öllu Mið-Austurlandi.

bubbiÁ heimleiðinni niður á Reyðarfjörð hlustaði ég á þátt Bubba Morthens á Rás2, "Færibandið", í fyrsta skiptið og viðmælandi Bubba var prófessor Njörður P. Njarðvík. Niðurstaða mín eftir tæplega hálftíma hlustun er sú að Bubbi á ekkert erindi með útvarpsþátt í útvarpi allra landsmanna. Þetta var minna spennandi en að hlusta á kaffistofuspjall í illa lyktandi verbúð í krummaskuði á Austfjörðum. Kannski Bubba takist betur upp ef viðmælendur hans eru á einhverju svipuðu róli og hann sjálfur, en þetta pólitíska spjall hans við prófessorinn var skelfilegt svo ekki sé meira sagt.

Bubbi á ekki að setja sig í gáfumannastellingar. Ég hefði hugsanlega haft gaman af að heyra Bubba spjalla við einhvern úr "bransanum", en þetta var eiginlega bara neyðarlegt.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef hlustað á 2 þætti hjá honum, annar var fínn en hinn slappur að mínu áliti en það er nú bara minn smekkur, þú segist hafa hlustað í tæpan hálftíma og segir Bubba ekkert erindi eiga  í útvarp?? hvernig getur þú fundið það út með hálftíma hlustun? Segðu okkur hinum líka hvernig gáfumannastelling er

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 17:28

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Hún er svona

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 17:41

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er þessi á myndinni til vinstri

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 17:43

4 identicon

Já þessi með gleraugun er það ekki?

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband