Það er best að VG taki við þessu

Ef kosið yrði núna þá kæmi VG mjög sterkt út úr kosningunum og þeir yrðu sennilegir í ríkisstjórn. Sá Svarti Pétur sem þeir fengju í hendurnar með ríkisstjórnartaumnum er mátulegur á þá. Þetta vilja þeir, þó þeir hafi náttúrulega engan mannskap til stjórnunar. Því fyrr sem þeir taka við, því fyrr hröklast þeir frá völdum Eða ætlar almenningur að gefa þeim lengri tíma en þessi ríkisstjórn hefur fengið eftir bankahrunið?

Ef VG tekur við í maí, þá verður sennilega búið að gera helling um næstu áramót. Ef ekki, verða þá mótmæli af því taginu sem VG- hefur veitt móralskan stuðning að undanförnu? Maður spyr sig.


mbl.is Þjóðin var í Alþingisgarðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég held reyndar að Steingrímur J sé jafn ráðalaus og aðrir þingmenn í þessu ástandi. Fólk er ekkert búið að segja skilið við kapitalismann. Fólk er hinsvegar að segja nei við spillingunni.

Offari, 20.1.2009 kl. 18:08

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég sé reyndar enga spillingu á stjórnmálasviðinu þó ég sjái mörg mistök í dag og sofandahátt. Spilling í bankakerfinu? Það sýnist mér, já.

Annars hefði ég haldið að bíða ætti eftir niðurstöðum rannsóknarnefndarinnar, áður en fólk dæmir.

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 18:13

3 identicon

Þú ert jafn klikkaður og VG greinilega ef þú heldur að það lið geri nokkuð einasta gagn... samþykkti eftirlaunafrumvarpið, vill kvótakerfið áfram, styður bjórbann, ég veit ekki hvað og hvað.

Þetta væri að fara úr öskunni í eldinn.

Það þarf nýtt fólk... ekki einhverjar súrar VG eftirlegukindur sem hafa rembst við það í yfir 20 ár að komast á þing.

Breytingar verða ekki gerðar breytinganna vegna!

Freyr (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 18:17

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Verst að þeir eru þegar búnir að búa til afsakanir fyrir lélegn árangur í stjórnun. Nefnilega að allt sé öðrum að kenna en þeim.

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 18:19

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ah, sá ekki þína athugasemd Freyr. Ég er sammála þér.... nema ég er ekki alveg jafn klikkaður og VG  

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 18:21

6 identicon

Nei, enda kom það fram... ef þú heldur þá ertu. En þú ert sammála mér og þá auðvitað eyðir "ef"-ið mitt fyrstu athugasemd

Freyr (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 18:25

7 Smámynd: Offari

Spillingin er að auðvaldið hefur gert ríkisstjórnina að sinni leppstjórn. Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar verður ekki sýnd fyrr en ríkisstjórnin sættir sig við niðurstöðu hennar. Hversvegna heldur þú að upplýsingarnar séu svona lengi að skila sér?

Offari, 20.1.2009 kl. 18:30

8 Smámynd: Baldur Hermannsson

VG fengi sennilega hreinan meirihluta. Eva Hauksdóttir verður dómsmálaráðherra. Hörður Torfason fer í fjármálaráðuneytið. Þá verður sko betri tíð með blóm í haga.

Baldur Hermannsson, 20.1.2009 kl. 18:32

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Rannsóknarnefndin er þverðólitísk, auk þess munu fleiri skoða málið og stjórnarandstaðan mun hafa aðgang að öllu

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 23:43

10 identicon

Menn slá um sig með spaugi,,, engin spilling 1 náfrændi, 1 góður vinur og svo sonur í dómarasætum og engin þótti vera hæfasti umsækjandinn ,,hvern er verið að tala um annan en Davíð þinn Oddsson

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 01:09

11 Smámynd: Pétur Kristinsson

LOL ekki er ég vinstri grænn, langt frá því en finnst þér virkilega að Matthísen, Haarde, Bjarnason, Gunnarsdóttir hafi staðið sig það vel að þú hafir ástæðu til þess að hafa ástæðu af mannavali VG ef þau kæmust til valda? Það kæmust þó alveg örugglega fólk til valda sem myndi taka til eftir  alltof langa spillingartíð sem hefur keyrt þjóðina nánast niður í eymd.

Pétur Kristinsson, 21.1.2009 kl. 02:02

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hef mínar efasemdir, Pétur

Gunnar Th. Gunnarsson, 21.1.2009 kl. 17:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband