Rafrænar óværur

Til er fólk sem fær heilmikið út úr því að skemma fyrir öðrum. Slíkt fólk verður ekki flokkað eftir menntun, gáfum, þjóðfélagsstatus eðu öðru, það er einfaldlega svoleiðis innrætt. Þeir sem búa til tölvuóværur eru e.t.v. ekki allir  í þessum skemmdarvargahópi. Sumir halda að ef þeir hanni nógu illvíga óværu, þá verði þeir frægir og fái í kjölfarið tilboð frá Microsoft eða öðrum hugbúnaðarrisa. Eða góða stöðu hjá Pentagon eða öðrum opinberum stofnunum sem sýsla mikið með dulkóðun o.þ.u.l.

99,99999 % af öllum tölvusýklum eru nauðaómerkilegir og auðveldir viðfangs, heyrði ég eitt sinn Friðrik Skúlason segja í sjónvarpsviðtali, en svo koma hinar óþægilegu undantekningar sem valda verulegum usla í tölvuheiminum. Lykillinn að hættulausri netnotkun liggur auðvitað í að hafa góða vírusvörn sem uppfærist með reglulegu millibili. PC-tölvur eru vinsælastu fórnarlömb vírushönnuða, einfaldlega vegna þess að þær eru langvinsælastar í heiminum. Makkinn (o.fl stýrikerfi) eru því öruggari að þessu leiti, þó hann sé ekki laus við þennan fjanda.

Samsæriskenningin segir að að vírusvarnafyrirtæki smíði sjálf vírusa og dæli á netið til þess að fólk gleymi síður mikilvægi þess að kaupa sér vírusvörn. Ég veit auðvitað ekkert um það en mér finnst það samt ágætis kenning.

datamancerlaptop-open

Í þá gömlu góðu daga.. þegar tölvur voru fótstignar og/eða upptrekktar.


mbl.is Tölvuormur æðir áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Fá tölvubandíttar nokkurn tíma maklega refsingu þótt upp á þeim hafist?

Baldur Hermannsson, 19.1.2009 kl. 19:02

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gunnar, kenníng þezzi er jafngóð þeirri sem segir að ökukennarar slugzi sífellt við ökukennzluna því að þeir vilji ekki að nemendurnir standist ökuprófið, til þezz einz að geta keyrt þá síðar sem leigubílstjórar.

(jamm, ég er kerfizfræðíngur, kyzzi ekki talandi frozga...)

Steingrímur Helgason, 19.1.2009 kl. 23:12

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Neeee.... mér finnst víruskenningin skárri

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.1.2009 kl. 23:56

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Enda ert þú ennþá flokkzbundinn Sjálfstæðizmaður, & því auðveldlega fyrirgefið hvað þér finnzt um hitt & þetta.

Steingrímur Helgason, 20.1.2009 kl. 00:38

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2009 kl. 00:49

6 identicon

Sælir, 

Einnig gætir þú sagt að slökkviliðsmenn gangi um og kveiki í til að fá eitthvað til að gera.  Já eða læknar bregði fæti fyrir gamlar konur svo þeir geti fengið smá pening út úr því.  Það sem fæstir vita er að þeir aðilar sem stunda þetta eru að græða á þessu.  Þeir leigja út sýktar vélar til ýmiskonar ódæðisverka, DDos árási, senda spam o.s.frv.   Þannig að það útskýrir vel útbreiðsluna.  Fólk gerir ýmislegt fyrir peninga.

Góðar stundir,

Ragnar Gísli. 

Ragnar Gísli (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 15:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband