Sagan endalausa

Djöfull væri ég orðinn þreyttur á þessum seinagangi með þessa brýnu samgöngubót, ef ég byggi enn í Reykjavík. En þarna á auðvitað að koma brú en ekki göng. Brýr eru listaverk en göng eru bara göt.

bru

brú


mbl.is Opinn fundur um Sundabraut í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Samgöngubót verðum við að fá. Friðrik afi minn Þorvaldsson var ötull talsmaður þess að brúa bæði Hvalfjörð og Borgarfjörð, en göng voru þá ekki vel raunhæf. Hann upplifði Borgarfjarðarbrúna (sem er prýðilegt samgöngumannvirki) og ég veit að hann var áhugasamur um göng (en tíminn þeirra var ekki alveg kominn). Ég hugsa að hann hefði orðið stórhrifinn af Hvalfjarðargöngunum sem samgöngubót, en sjálfsagt þótt, eins og mér þykir, óþægilegt að aka löng neðansjávargöng.

Friðrik Þór Guðmundsson, 7.5.2008 kl. 22:21

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvalfjarðargöng er ein stórkostlegasta samgöngubót Íslandssögunnar og þar var brú tæplega raunhæf. Mér finnst aðallega svo óheyrilegur kostnaðarmunur á brú/göng dæminu við sundin, auk þess sem brú gæti orðið fallegt mannvirki þarna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.5.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þú ert svo launfyndinn stundum að það er hreint listaverk!! Ekkert síðra en brýrnar.

  mickey thumbs up

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 7.5.2008 kl. 23:44

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Vá, takk! hehe

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.5.2008 kl. 00:39

5 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Ég var í Færeyjum um daginn og vinur minn sem Þaðan er heimamaður ók mér um í útsýnisferð.  Svaka gaman!  Þegar við ókum í gengum ein jarðgöngin og ég sagði "hér eru flott jarðgöng!"  Hann bókstaflega hló sig máttlausan og tárin láku niður kinnarnar á honum.  Þegar hann var búinn að jafna sig, sagði hann við mig: "Tið Íslendingarna kunnid ekkert að tala.  Tetta heitir på mannamåli "berghuller", bara så tu vissir tað."

Kær kveðja, Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 8.5.2008 kl. 17:39

6 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Að alvarlegri málum.  Veist þú Gunnar minn hve margir fremja sjálfsmorð með því að hoppa út af þessum stóru brúm, t.d., Golden Gate brúnni í San Fransisco, Westminster Bridge í Lundúnum, Ölfusárbrú við Selfoss (alla vega eitt svo ég muni úr fréttum), og svo allar brýrnar í New York svo dæmi séu tekin?

Hversu margir hafa drekkt sér með því að hoppa út úr Hvalfjarðargöngunum? - Enginn enn.

Kær kveðja, Björn bóndi.

Sigurbjörn Friðriksson, 8.5.2008 kl. 17:45

7 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Bergholur... já, það segir sig sjálft

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.5.2008 kl. 18:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband