Það er svo skrítið hvernig hið neikvæða er blásið út af þeim sem telja að það styrkji málstað þeirra í andstöðu sinni við álvers og virkjunarframkvæmdir fyrir austan. Og svo er fabúlerað út í eitt. Getgátu og ímyndunarstíllinn í hávegum hafður og gjarnan notuð: "Let them denigh it" taktíkin, sem Richard Nixon gerði frægt snemma á áttunda áratugnum.
Ástæðan fyrir þessum orðum mínum er innlit mitt hjá þeim bloggurum sem blogga við fréttina hér að neðan. Þar kemur ýmislegt fróðlegt í ljós s.s.
"...að frétt sé hálfan mánuð að rata suður. Átti þetta ekki að fréttast.???? Eru margir sem slasast? Það kostaði mörg mannslíf og slys að byggja Kárahnjúkavirkjun".
Við fyrstu sýn gætu þessar vangaveltur átt rétt á sér en í fréttinni kemur þó fram að fyrstu vikuna eftir slysið, þá var ekkert sem benti til þess að um meira en venjulegt rafstuðsslys án eftirmála væri að ræða. Ef allir rafvirkjar á Íslandi ættu að tilkynna í hvert sinn sem þeir fengju í sig rafmagn.....
Það má þó segja að þar sem Alcoa er undir vökulu auga gagnrýnins og upplýsts almennings, þá sé það nú frekar klaufalegt hjá þeim að koma ekki með fréttatilkynningu fyrr. En ásakanir um að þeir reyni að leyna einhverju vísvitandi hlusta ég ekki á nema sannanir liggi á borðinu.
Ódýrt vinnuafl ? er yfirskrift pistils Jóns Aðalsteins Jónssonar, þar sem hann spyr fullkomlega eðlilegrar spurningar: "Var ekki verið að deila um réttindi rafiðnaðarmanna frá Hamri sem að unnu við uppsetningu búnaðar í álverinu? Ég tel að það þurfi að koma fram hvort að þetta er afleiðing þess eða ekki".
Það sem hins vegar kom í athugasemdarkerfinu var: "...óhhh... Pólverji, það skýrir málið... ætli leiðbeiningarnar hafi verið á Íslensku? Hvað vinna eiginlega margir íslendingar þarna? "
Ég held að það sé lítil hætta á því að Alcoa sé að ráða til sín réttindalausa rafiðnaðarmenn, þó ekki væri nema vegna, eins og áður sagði, vökulla augna almennings. Hins vegar gætu hinir misstóru undirverktakar freistast til að ráða til sín einn rafvirkja og svo nokkra pólska "handlangara", sem taka laun réttindamanna í útseldri vinnu. Slíkt þarf auðvitað að uppræta.
Fékk í sig rafstraum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 0
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 53
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Ranghugmynd dagsins - 20241222
- Vantraust á eigin þingflokk?
- Og illþýði allskonar á flökti um mannheima
- Snjólag í Reykjavík um jól og áramót frá 1921
- Nokkur hundruð milljarðar út um gluggann
- Áfram haukur í utanríkisráðuneytinu
- Níundi áratugurinn leysti vandamál, þeir fyrstu á 21. öldinni bjuggu þau til
- Karlar sem brjóstfæða & pólitískar ofsóknir ...
- Pólitískar vendingar með hækkandi sól
- Ný stjórn, skoðum hana:
Athugasemdir
Sammála
Einar Bragi Bragason., 31.1.2008 kl. 12:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.