Við erum öruggir áfram

Guðjón Valur Sigurðsson. Við erum öruggir áfram þó við töpum fyrir Frökkum. Það er alveg sama hvernig Svíþjóð-Slóvakía fer á morgunn, ef innbyrðis viðureignir þeirra og okkar eru reiknaðar. Fyrir þeirra viðureign er Ísland með 2 stig og 1 mark í plús. Svíar með 2 stig og 5 mörk í plús og Slóvakar með 0 stig og 6 mörk í mínus. Til þess að Slóvakar jafni okkur á markamun, þá þurfa þeir að vinna Svía með 7 marka mun. Þá sitja Svíar eftir með mínus 1 mark, Slóvakar og við með +1 mark.  Þannig að fræðilega séð, sama hvernig allt fer, þá erum við komnir áfram.

Við þyrftum að sigra Frakka til að fara með 2 stig í milliriðil og enn betra er að Slóvakar sendi Svía heim, þá förum við áfram með fjögur stig, því Svíaleikurinn okkar dettur út. Ef Svíar vinna Slóvaka og við Frakka, þá eru öll liðin með 2 stig og Slóvakar heim. Þá gæti markatala skipt máli í milliriðlinum uppá framhaldið. Ef við töpum fyrir Frökkum og Svíar vinna Slóvaka, þá förum við áfram með ekkert stig í milliriðil og þá getum við gleymt því að komast í undanúrslit.


mbl.is Guðjón Valur: Batamerki á leik okkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

St 2 og spekingarnir í EM stofunni hjá RUV töluðu um í gær að "fræðilega" séð gætum við dottið út og við verið á heimleið, ef allt færi á versta veg. Eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti og kallað til helstu stærðfræðinga þjóðarinnar þá komust þeir að sömu niðurstöðu og ég. Þeir hefðu getað sparað sér þá höfuðbleytingu og bara lesið bloggið mitt í gærkvöldi

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2008 kl. 12:49

2 identicon

Af hverju getum við gleymt því að komast í undanúrslit??

Ævar Oddur Ævarsson (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 20:04

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Vegna þess að þá þurfum við að vinna allar þrjár þjóðirnar í milliriðli, Þjóðverja, Spánverja og Ungverja og það er ekki að fara að gerast.

Gunnar Th. Gunnarsson, 20.1.2008 kl. 20:39

4 identicon

Já vissulega er það hæpið, en miði er möguleiki þó örugglega ekki með 

svona hugarfari. 

Ævar Oddur Ævarsson (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband