Klúbb syndrómið

Það er frekar leiðinlegt að vera knattspyrnuáhugamaður og vera Íslendingur þegar landslið okkar er annars vegar. Andleysi leikmanna var algjört og þetta "klúbb syndrome" virðist vera eitthvað sem loðir við íslenska landsliðið. Voða gaman hjá atvinnumönnum okkar að hittast nokkrum sinnum á ári. Það eina sem gladdi augað var að nokkrir nýjir leikmenn fengu að spreita sig og þeir báru af. Þeir vilja greinilega komast í klúbbinn. Þjálfarinn er ekki starfi sínu vaxinn. Talaði um að varnarleikurinn væri í lagi!! Á kvað leik var hann að horfa? Og eftir hverju var hann að bíða í seinni hálfleik þegar allir sáu (nema hann) að liðið var að spila hörmulega. Allt of lengi beðið með skiptingar eins og venjulega. Eini maðurinn sem hefur sýnt virkilegan metnað sem landsliðsþjálfari er Guðjón Þórðarson. Eiður sást ekki í leiknum og þegar hann hafði boltann var ekki að sjá að hann væri neinn heimsklassaleikmaður. Miðað við frammistöðu hans er ekki skrítið að hann komist ekki í lið Barcelona. Allir leikmenn íslenska liðsins fá falleinkunn nema Theodór Elmar, Birkir og Brynjar Björn og kannski Árni Gautur sem ekki verður sakaður um markið.
mbl.is Jafntefli gegn Liechtenstein og Eiður í leikbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband