Hvem er den største idiot?

Landsleikur Dana og Svía verður lengi í minnum hafður. Frábær leikur hjá báðum liðum og dramatíkin ótrúleg. Ég og Jökull 11 ára sonur minn horfðum á leikinn í gær og svo aftur í endursýningu í dag. Og við vorum næstum jafn spenntir í endursýningunni! Lýsing Þorsteins Gunnarsson hjá Rúv á leiknum var í sama gæðaflokki og leikurinn.

fodboldidiot_-_med__255932g

Hvem er den største idiot?

Extrar Bladet í Danmörku er með þessa mynd og fyrirsögn á netmiðli sínum í dag. Gaurinn sem hljóp inn á völlinn mun ekki eiga sjö dagana sæla á næstunni, en hann mun vera Dani búsettur í Svíþjóð. Spurning hvort upphlaup hans bjargi Christian Poulsen, en hann sló sænskan sóknarmann í magann inn í vítateig, fékk rautt fyrir vikið og vítaspyrna dæmd, þó boltinn væri víðsfjarri.

 Miðað við fyrirsögn Extra Bladet þá er Poulsen einnig í djúpum skít. Atvik þetta átti sér stað á 89. min., en Dönum hafði  tekist að jafna á ævintýralegan hátt eftir að Svíar komust í 3-0 eftir 26 mínútna leik.  FIFA hefur enn ekki lagt sinn dóm á ákvörðun þýska dómarans í leiknum að flauta leikinn af í kjölfar árásar fótboltabullunnar og dæma Svíum 3-0 sigur og því hafa staðfest úrslit á leiknum ekki fengist. Auðvitað veit enginn hvort Sörensen hinn danski hefði varið vítaspyrnuna eða ekki, en úr því fæst aldrei skorið. Ég hefði mikið viljað gefa fyrir að vera á Parken þessa kvöldstund. Ógleymanlegt!

 


mbl.is Svíum dæmdur 3:0 sigur á Dönum á Parken eftir árás á dómara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Góð spurning, því árás Poulsen var svakaleg

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.6.2007 kl. 17:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband