Blindir fá bílpróf í Hollandi

Í nýlegu fréttabréfi Ökukennarafélags Íslands segir að blindir megi keyra í Hollandi. Ekki er þó verið að tala um sjálfkeyrandi bíla og þ.a.l. ekki verið að tala um staurblinda heldur lögblinda.  

Í fréttabréfi Ökukennarafélagsins segir:

 "Í Hollandi hafa nú um 100 manns sem eru gott sem blindir, eða með 5% sjón fengið bílpróf og geta ekið með sérstökum búnaði sem er eins konar stækkunargler . Þessir einstaklingar geta ekið hvar sem er í heiminum en áhugavert verður að fylgjast með hvernig íslensk stjórnvöld bregðast við"

12

 

 

 

 

 

 

 

Tákntölur í ökuskírteinum eru nokkrar, t.d. er talan 400 hjá þeim sem hafa leigubílaréttindi, 450 hjá rútubílstjórum, 500 hjá ökukennurum, 100 fyrir réttindi á fólksbifreið þyngri en 3.500 að leyfðri heildarþyngd t.d. húsbíl o.s.f.v.

1Evrópusambandið er búið að gefa út nýja tákntölu, 69, fyrir þá sem ekki mega aka nema að vera með áfengislás í bílnum hjá sér, en í nokkrum löndum s.s. Svíþjóð, Finnlandi, Frakklandi, Belgíu og Hollandi er þessari tákntölu beitt til að stemma stigum við akstri undir áhrifum áfengis.

Nýlega kom tákntalan 900 í ökuskírteini á Íslandi, en það þýðir að viðkomandi ökumaður er líffæragjafi.


mbl.is Mestu breytingarnar frá upphafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband