Færsluflokkur: Dægurmál

Í Kanada?

Það hefði ekki komið á óvart ef þetta hefði verið í Bandaríkjunum, en í Kanada Errm   Ég hélt að Kanadamenn væru svo "Líbó".

Kaninn fær hland fyrir brjóstið ef sést í hálfa geirvörtu, en morð og ofbeldi geta þeir horft á með morgunkorninu.

149113394v9_480x480_Front

 


mbl.is Kennurum vikið úr starfi fyrir kjöltudans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða... hvaða?

abetterworldviatploycomne9Þessi bloggpistill, eða hvað þetta nú er... þessi "frétt" er dálítið sérstakur (stök)

Ég tek þó undir það að þessi upptalning: „Dauðadrukkið súpermódel“, „Nafli Kate Hudson“, „Courtney Cox (45): Í fantaformi á fimmtugsaldri“, „Nicole Kidman (42): Ég hef aldrei farið í botox“, „Verslar ómáluð“. , sem er úr Visir.is (er mér sagt Whistling) er dálítið yfirdrifið hjá þessum vefmiðli. En það er greinilegur áhugi á þessu. En hvað á að gera? Banna þetta? Errm

En svo kemur þetta, frá Arnari Eggert Thoroddsen, þeim er skrifar fréttina:

"Af hverju eru allar þessar fréttir af kvenfólki? Jú, af þeirri einföldu ástæðu að karlar fara með völdin í þessum skrifum/miðlum. Annars værum við að lesa um þröngu og gegnsæju sundskýluna hans Johnny Depp dag eftir dag." (undirstrikun mín)

Ætli jafnréttisráð viti af þessari mismunun? Joyful

 


mbl.is Hvað er þetta annað en kvenfyrirlitning?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

Ég hef nú ekki haft mikið álit á tryggingafélögum í gegnum tíðina, og þessi frétt breytir því auðvitað ekkert, en ég er afar sáttur við það að þessi ökumaður skuli ekki fá tjón sitt bætt.

funny_863


mbl.is Fær tjón ekki bætt vegna ofsaaksturs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er námið vandamálið?

Mér sýnist við lestur þessarar fréttar að námið sé minnsta vandamál þessarar ólánskonu. Bankinn er gerður að sökudólg í þessari umfjöllun Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, en það þarf svo sem ekki að koma á óvart frá henni.

Ég man ekki eftir fréttamanni á Íslandi með meiri vinstri slagsíðu en Þóru Kristínu, formanni blaðamannafélags Íslands, nema e.t.v. Evu Erlendsdóttur og Jóhanni Haukssyni. Matreiðsla hennar á sumum fréttum er heiðri blaðamanna til skammar.


mbl.is Móðir hrökklast frá námi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Presturinn og vegvísirinn

Hvað er líkt með presti og vegvísi?

Báðir vísa veginn en fara hann ekki sjálfir LoL

Þessi kaþólski pólski prestur er kannski undantekningin en ég hef lengi haldið að kynlíf kaþólskra presta væri "taboo", svona svipað og "Kók fyrir komma er eins og píka fyrir homma" Joyful

haha


mbl.is Prestur gefur út kynlífshandbók
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of eða van

Það er óheppilegt þegar annar aðilinn í sambandi karls og konu þarf meira en hinn. Sumir segja að kynlíf sé ofmetið en Mel B. er örugglega ekki í þeim hópi. En það hlýtur að vera stressandi að vera með kvenmanni sem hugsar ekki um annað en kynlíf. Já, og eiginlega bara þreytandi og leiðinlegt til lengdar. 

Sumir þurfa að tala alveg óskaplega mikið en kunna ekki að hlusta. Sumir tala eiginlega ekki neitt.... og kunna heldur ekki að hlusta, nema kannski á stunurnar í maka sínum.

En svo er líka stundum gott að þegja saman. Fólk sem gerir það öðru hvoru og líður vel með það, er í fínum málum.

hárþurrkan


mbl.is Með gríðarlega kynorku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóísk ró lögreglunnar

Kunningi minn sendi mér þessa mynd af sér og félaga sínum í einum mótmælunum um daginn. Vel fer á með þeim félögum og Geir Jóni yfirlögregluþjóni.

fun downtown 003

He never knew what hit him!


mbl.is Mótmælt á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halda hlífisskyldi yfir fulltrúa VG

Fulltrúa VG er falið af foreldrum stúlkunnar að koma þessu bréfi áleiðis og það er auðvitað bara klaufaskapur og ekkert annað af VG manninum að eyða ekki nafni stúlkunnar út. En ég velti því fyrir mér hvort foreldrar stúlkunnar hefðu hlíft Sjálfstæðismanni fyrir samskonar mistök.

Það er veruleg skítalykt af þessu máli, eins og glögglega má lesa HÉR


mbl.is Álasa ekki Þorleifi fyrir bréfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimabruggið eykst

Heimabrugg og sala á misgóðum og jafnvel hættulegum landa mun aukast ef hækka á áfengið mikið. Þetta líst mér ekki á..... bannárin voru uppgripstímar fyrir glæpamenn.

moonshine_still_sugar_valley


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Götunöfn og númer á Reyðarfirði

Ég efast um að einhver nafnanefnd sé til í Fjarðabyggð því það er afar ólíklegt að heill hópur fólks komist að þeirri niðurstöðu að allar nýjar götur í bænum, sem eru þó nokkrar eftir að álverið kom hingað, þurfi að hafa gerði og melur í nafni sínu. Ekki nóg með það, heldur er óreiðan slík að ekki einu sinni staðkunnugir átta sig hér, allt er í einum hrærigraut og svo er fjöldi húsnúmera með bókstöfum líka.

Þegar ég var að alast upp í Skuggahverfinu í Reykjavík, þá var fullt af húsnúmerum með bókstöfum einnig, en það hafði eðlilega skýringu því þetta voru bakhús. Engin bakhús eru á Reyðarfirði, samt eru margar götur með númerin og svo a,b,c o.s.f.v. til viðbótar.  Þetta getur verið mjög bagalegt þegar finna þarf hús, því mörg hver eru ekki merkt og ekki er hægt að telja sig áfram.

Þegar ég var leigubílstjóri á Steindóri í gamla daga, þá var mér strax kennt óbrigðult ráð til að vita hvoru megin húsnúmerin byrjuðu, en það er byrjað að telja út frá horninu á Vesturgötu og Hafnarstrætis í allri Reykjavík, að tveimur eða þremur götum undanskildum. Engin slík regla er á Reyðarfirði.

Nafna og númerakerfið á Reyðarfirði er höfundinum til háðungar.


mbl.is Nöfn samþykkt á nýjar götur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband