Færsluflokkur: Spaugilegt
Cameldýr eru klaufdýr. Ameríkaninn fann upp nýyrði yfir það fyrirbrigði þegar konur klæðast svo þröngum buxum að útlínur kynfæra þeirra koma "berlega" í ljós. Það líkist klauf á kameldýri. Ég trúi því ekki að þær konur sem sýna "Kamel-tánna" sína, geri það óvart og óafvitandi. Er þetta þá sýniþörf? Hvað um það, hér koma nokkrar kamel-tær.
"If there is someone you want to get to know, show ´em the Toe", segir þessi framleiðandi á gerfi kameltám í auglýsingu sinni, fyrir þær sem ekki eru nógu vel vaxnar niður... ehem... eða þannig. Hægt er að fá kameltá í þremur mismunandi stærðum; Mild, Medium, Cougar*.
Spaugilegt | 7.8.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spaugilegt | 5.8.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þegar hlýnar í veðri eins og gert hefur undanfarna daga á Norður og Austurlandi, eftir frekar svalt vor, þá verður mönnum ósjálfrátt hugsað til "Global Warming". En þegar kalt er í veðri... þá er ekkert að marka... bara eðlileg sveifla í risjóttu veðurfari norðurslóða.
Ég hef miklu meiri áhyggjur af menguninni sem slíkri heldur en hækkandi hitastigi
Svo er verið að kvarta yfir þróuninni!!
![]() |
Hlýnun ekki ógn á Íslandi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 27.5.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég var 8 ára gamall og bjó í Stykkishólmi þegar H-dagurinn gekk í garð. Pabbi minn var "löggan" á staðnum. Lögregluembættið átti m.a. að dreifa límmiðum með bókstafnum "H" til fólks til að minna á daginn. Ég fékk marga miða og var voðalega hamingjusamur með það. Fyrir nokkrum árum fann ég meira að segja einn í kassa í geymslunni en ég veit ekkert í hvaða kassa. Ég finn hann kannski aftur eftir 20 ár.
Nokkrum mánuðum eftir H-daginn varð árekstur í Stykkishólmi. Pabbi tók skýrslu af ökumönnunum en annar þeirra var karl á áttræðisaldri sem var í órétti. Sá gamli var ósáttur við hinn ökumanninn og kenndi honum um óhappið. Þá segir pabbi við hann " En þú veist það nú að það er komin hægri-umferð og þú ert í órétti, það er varúð til hægri". Undrunarsvipur kom á gamla manninn og hann svaraði; "Breyttist það líka??"
Lönd með hægri umferð eru merkt rauð en lönd með vinstri umferð eru merkt blá. Þó vinstri umferð sé í mikið færri löndum en hægri umferð er það samt svo að um 34% mannkyns býr í þeim löndum þar sem keyrt er vinstra megin. Þar munar miklu um mjög fjölmenn ríki eins og Indland og Indónesíu.
Vinstri umferð á sér mjög langa sögu. Þegar vopnaðir menn mættust, gangandi eða ríðandi, var tryggast að hafa höndina sem sverðinu brá sömu megin og sá var, sem á móti kom. Örvhentir riddarar urðu sjaldan ellidauðir.
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=6959
![]() |
Hægri umferð 40 ára gömul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 26.5.2008 (breytt kl. 11:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Maðurinn sem lést vegna frygðarlyfsins sem talað er um í fréttinni, hefur ætlað sér að veita stelpunni sem hann var að sverma fyrir, "A night to remember". Kannski hefur hann verið þjakaður af frammistöðukvíða eftir að hafa horft of mikið á netklám.
Japanir ku vera sérlega ginkeyptir fyrir allskyns frygðarlyfjum. Mulin nashyrningshorn eiga t.d. að gera menn alveg spól..
Karlmenn hafa látið draga sig á asnaeyrunum öldum saman... við erum í heljargreipum djöfullegs samsæris kvenna. Þær þóttust vera veikburða og tilfinninganæmar, þurftu vernd, öryggi og umhyggju. Í staðinn lofuðu þær að vera undirgefnar og örlátar. En svo uppgötvuðu þær fullnæginguna... fjandans!....og í kjölfarið fylgdi jafnréttiskjaftæðið. Hvað næst?!!
Jú, næst hjá þeim var að sá efasemdarfræjum í sjálfsmynd okkar sem kynverur. Nú eigum við að vera eins og einhverjar vélar, með "ON" og "OFF" takka. Annars erum við alveg glataðir. Við eigum að vera fullir orku, hvenær sem þeim þóknast... og þá komu frygðarlyfin til sögunnar.
Æ, má ég þá frekar biðja um þá gömlu góðu daga, þegar við þurftum bara að eiga slatta af peningum til þess að vera kvennagull. Það var miklu einfaldara.
P.s. Ekki það að ég hafi einhverntíma átt einhverja peninga að ráði, en maður vissi þó hvað þurfti til. Ég notaði bara það sem Guð gaf mér... náttúrulegan sjarma, ómótstæðilegt augnaráð og tungulipurð. Það dugði a.m.k. fyrir "one night stand".
![]() |
Varað við banvænu ástarlyfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 26.5.2008 (breytt kl. 02:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þegar starfsfólk Grunnskóla Reyðarfjarðar fór í óvissuferð um síðustu helgi, sátum við hjónin með Þóroddi Helgasyni fyrrv. skólastjóra grunnskólans og núverandi fræðslustjóra Fjarðabyggðar, og Hildi konu hans á aftasta bekk í rútunni á leið út í óvissuna. Spiluð var hressileg músík í geislaspilaranum fyrir okkur og ég spurði Þórodd hvort þetta væri ekki eitthvert júróvision lag. Þóroddur hugsaði sig um litla stund og svaraði svo: "Jú, er þetta ekki..þarna.. Benz-klúbburinn?".
![]() |
Ísland áfram í Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 22.5.2008 (breytt kl. 23:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þegar konan færði í sundur fæturnar við skoðunina, þá heyrðist eins og í frönskum rennilás. Það var strax ákveðin vísbending

![]() |
Rúmeni fær skírlífisvottun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 17.5.2008 (breytt kl. 18:03) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Spaugilegt | 15.5.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Breti nokkur reyndi að selja höfuðkúpu af barni fyrir háa upphæð. Hann fullyrti að kúpan væri af Shakespiere. Einhver benti honum á að skáldið hefði náð fullorðinsaldri en þá sagði Bretinn; "Já, en þessi er af honum ungum!"
Já, ég veit....... þessi er gamall
![]() |
Hauskúpan ófundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | 9.5.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Pylsa með öllu
Þú húðlita bjargráð, þú innyflum útfyllta sin;
Undirlögð margræðum sósum, á laukstráðu beði.
Af algleymisfögnuði langþráðum logar mitt gin
er ljúkast um enda þér titrandi varir, af gleði.
(stolið af baggalutur.is)
Spaugilegt | 3.5.2008 (breytt kl. 13:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 947079
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Tíska : Hátíðarklæðnaður fyrir þá yngri
- Fleiri á móti en með
- Á þetta nokkuð við í íslenskri landhelgi?
- Þegar Evrópusambandið refsar eigin borgurum fyrir skoðanir
- Greta segir Ísraelsmenn illmenni en þiggur brauð þeirra með bros á vör
- Fyrsta íslenska lýðveldið er fallið
- Útlendingamál í brennidepli
- Hlutfall landsmanna á endurhæfingarlífeyri tvöfaldast
- KANNSKI VÆRI ÞARNA KOMIÐ "BESTA VERKFÆRIÐ" Í BARÁTTUNNI VIÐ VERÐBÓLGUNA.....
- Ísraelsher kemur Gretu Tumberg og öðrum aðgeðarsinnuum til hjálpar