Breyttist það líka!?

Frá H-deginum fyrir 40 árum

Ég var 8 ára gamall og bjó í Stykkishólmi þegar H-dagurinn gekk í garð. Pabbi minn var "löggan" á staðnum. Lögregluembættið átti m.a. að dreifa límmiðum með bókstafnum "H" til fólks til að minna á daginn. Ég fékk marga miða og var voðalega hamingjusamur með það. Fyrir nokkrum árum fann ég meira að segja einn í kassa í geymslunni en ég veit ekkert í hvaða kassa. Ég finn hann kannski aftur eftir 20 ár.

Nokkrum mánuðum eftir H-daginn varð árekstur í Stykkishólmi. Pabbi tók skýrslu af ökumönnunum en annar þeirra var karl á áttræðisaldri sem var í órétti. Sá gamli var ósáttur við hinn ökumanninn og kenndi honum um óhappið. Þá segir pabbi við hann " En þú veist það nú að það er komin hægri-umferð og þú ert í órétti, það er varúð til hægri". Undrunarsvipur kom á gamla manninn og hann svaraði; "Breyttist það líka??"

vinstri_haegri_umferd_kort_

Lönd með hægri umferð eru merkt rauð en lönd með vinstri umferð eru merkt blá. Þó vinstri umferð sé í mikið færri löndum en hægri umferð er það samt svo að um 34% mannkyns býr í þeim löndum þar sem keyrt er vinstra megin. Þar munar miklu um mjög fjölmenn ríki eins og Indland og Indónesíu.

Vinstri umferð á sér mjög langa sögu. Þegar vopnaðir menn mættust, gangandi eða ríðandi, var tryggast að hafa höndina sem sverðinu brá sömu megin og sá var, sem á móti kom. Örvhentir riddarar urðu sjaldan ellidauðir.
http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=6959


mbl.is Hægri umferð 40 ára gömul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góð athugasemd hjá þeim gamla.

Jóhann Elíasson, 27.5.2008 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband