Ef morðingi gengi laus?

Ef morð hefði verið framið og morðinginn gengi laus, þá hefði þetta verið leyft á grundvelli almannahagsmuna. Það sama á að sjálfsögðu að gilda þegar nauðgari gengur laus en í þessu tilfelli er væntanlega um "meintan" nauðgara að ræða.... hvort sem fólki líkar betur eða verr Errm
mbl.is Fá ekki gögn í nauðgunarrannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já þetta er skrýtið allt saman og satt að segja þá ætti öllum að vera það kappsmál að ná þeim aðilum sem gera svona og þar sem það er ekki nema um 10 mín. tíma að ræða sem Lögreglan biður um að fá þá ætti það ekki að vera spurning þar sem öllum og ég segi ÖLLUM ætti að vera mikið í mun að ná þeim sem gera svona...

Meintur nauðgari eða nauðgari þá fjallar þetta um að ná í rassgatið á gerandanum og ekkert annað svo allir þeir sem neituðu Lögreglu um þessi gögn ættu að endurskoða afstöðu sína...

Kerfið á hvergi að þannig búið að það verji svona gerendur...

Kv.góð 

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.8.2012 kl. 16:50

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Kerfið á hvergi að vera þannig búið að það verji svona gerendur...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.8.2012 kl. 16:51

3 Smámynd: Einar Þór Strand

Á 10 mínútum geta farið hundruð símtala um kerfið á þessu svæði sem einnig nær líklega útfyrir Herjólfsdal.  Ætlaði þá lögreglan að boða alla karlmenn sem eiga síma og voru að hringja þarna í DNA?  Og hvað með þá sem eru með frelsiskort sleppa þeir ekki?  Þarna gæti lögreglan unnið betri vinnu tildæmis stytt tímann sem þeir eru að byðja um.  Gunnar þetta hefði sennilega aldrei verið leyft vegna þess að þetta er að "fiska í gruggugu vatni"

Einar Þór Strand, 28.8.2012 kl. 16:58

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Ingibjörg kerfið er ekki að verja gerendur heldur venjulegt fólk.

Einar Þór Strand, 28.8.2012 kl. 16:59

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Er það hafið yfir allan vafa að um nauðgun hafi verið að ræða?

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.8.2012 kl. 17:17

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ef enginn vafi er fyrir hendi þá finnst mér að Síminn eigi að láta þessi gögn af hendi

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.8.2012 kl. 17:22

7 Smámynd: Einar Þór Strand

Gunnar það sem er um að ræða er segjum að glæpur sé framinn á stað A á þá lögreglan að geta fengið upplýsingar um alla þá farsíma sem eru í þjónustu á sendum sem þjóna svæðinu og síðan verði menn að sanna sakleysi sitt?
Um daginn voru mótmæli við Rússneskasendiráðið útaf Pussy Riot myndir þú vilja að allir þeir sem voru tengdir við einhvern af þeim sendum sem þjóna svæðinu yrðu skráðir sem mótmælendur?

Einar Þór Strand, 28.8.2012 kl. 17:25

8 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það er búið að kæra nauðgunina, svo ekki er það neitt vafamál. Það er undarlegt að ekki megi rannsaka afmarkað svæði og símanotkun, þegar svona glæpur hefur sannarlega verið framinn.

Ef vel væri athugað, þá kæmi líklega í ljós að allir GSM-símar í landinu eru meir og minna hleraðir, án þess að glæpur sé í rannsókn. Ég verð líklega leiðrétt, ef ég hef rangt fyrir mér með hleranirnar.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.8.2012 kl. 17:46

9 identicon

Já Gunnar. Veit ekki betur en að þú sért fylgjandi flokknum sem styður persónufrelsið og túlkar það á þann hátt að ekkert má hlera og skoða og þar af leiðandi er réttur glæpamannsins oft hærri en fórnarlambanna eins og í þessu tilfelli. Frelsið er yndislegt ef rétt er með farið.

Pétur K. (IP-tala skráð) 28.8.2012 kl. 18:35

10 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Mér finnst það hreint ekki sjálfgefið að þó morð sé framið, eða annars konar alvarlegur glæpur, að engar hömlur séu á rannsóknarheimdildum lögreglunnar.

Sigurður Þór Guðjónsson, 28.8.2012 kl. 19:54

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Einar Þór, Pétur og Sigurður, ég er að tala um almannahagsmuni vegna nauðgara og morðingja. Ég set mörkin þar. Ef það er tæknilega mögulegt að góma slíka menn þá á að gera það.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.8.2012 kl. 06:38

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Anna Sigríður, það að búið sé að kæra nauðgun, þýðir ekki að nauðgun hafi átt sér stað, eins og ótal dæmi sanna.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.8.2012 kl. 06:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband