Færsluflokkur: Bloggar

Bengt Johanson

Það ætlar að reynast erfitt að fá landsliðsþjálfara í handknattleik. Spurning hvort handknattleikssambandið fari ekki að þjást af höfnunartilfinningu. Viggó sagði um daginn að hann hefði ekki áhuga á starfinu en mér finnst allt í lagi að kanna hug hans nú eftir að þessi staða er komin upp. Aron er fínn þjálfari en mér finnst hans tími ekki kominn. Hvar er Bengt Johanson, gamli þjálfari Svía? Hann væri spennandi kostur.
mbl.is Formaður HSÍ: Fleiri fiskar í sjónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróðursmynd fékk styrk

Bók Andra Snæs, Draumalandið, fékk verðskuldaða athygli en óverðskuldaða viðurkenningu sem fræðirit. Bókin er uppfull af hæpnum vísindum svo ekki sé fastar að orði kveðið. Ímyndanir og ágiskanir hafa aldrei þótt kostur í útgefnu efni sem á að vera fræðandi og upplýsandi.

 Nú er kvikmynd væntanleg sem byggð er á bók Andra og fékk hún 12 milj. kr. styrk úr kvikmyndasjóði. Ég efast ekki um að myndin mun vekja mikla athygli og ég hef áhyggjur af því að hún verði viðurkennd sem fræðslumynd, ekki síst á erlendum vetfangi. Á erlendum vetfangi verða e.t.v. ekki til staðar aðilar sem koma til með að hrekja þær vafasömu fullyrðingar sem munu prýða myndina.


mbl.is Draumalandið í bíó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Man Stroke Woman

Ég er alveg geldur í blogginu þessa dagana en fyrir þá sem ramba inn á síðuna mína, hendi ég inn bara einhverju sniðugu sem ég sé á youtube. Man stroke woman var sýnt á St. 2 í kvöld og ég fann þennan skets sem einmitt er úr þættinum sem var í kvöld. Gegt fyndið! LoL


Ekki prumpa í heitum potti


Hillary prumpar


Prumpa sætar stelpur?

 


Klúður á St. 2

 

Fann þetta á youtube.... njótið! Grin

 


M&M ....og W

SP: Hvaða hlutverki hélt ljóskan að hún gegndi hjá M&M verksmiðjunni? SV: Hún hélt hún væri prófarkalesari

Sp: Afhverju var hún rekin? Sv: Hún henti öllum W

blond cartoons, blond cartoon, blond picture, blond pictures, blond image, blond images, blond illustration, blond illustrations


Prinsessur

prinsessur

Dóttir mín Eyrún, sú í miðjunni er á öðru ári í ME og hér er hún með vinkonum sínum, Sonju Lind og Fanneyju. Algjörar prinsessur InLove


Myndir frá Reyðarfirði

Myndirnar hér að neðan eru teknar af síðu ferðaklúbbsins 4x4: http://www.f4x4.is/new/ 

34002

34006

Þarna má sjá nýbyggingar út um allt, en á Reyðarfirði var hægt að telja á fingrum annarar handar þær byggingar sem smíðaðar höfðu verið sl. 10 ár, fyrir álversframkvæmdirnar. Stóra húsið með hvolfþakinu er knattspyrnuhöllin sem vígð var sl. sumar og hægra megin við það eru 3 af 4 nýjum 7 hæða blokkum. Vinstra megin á myndinni uppi á melnum sést nýtt hverfi rísa. Hægra megin við blokkirnar (út úr mynd) er tvö önnur ný hverfi.

34010

Álverið í byggingu árið 2006. Fyrir ofan ljósmyndarann sést í starfsmannaþorp Bechtel, bandaríska verktakans sem byggði álverið, en þar voru um 1.600 manns, flestir frá Póllandi, þegar mest var. Yst vinstra megin á myndinni sést í nýtt hverfi austast í bænum. Álverið sést ekki frá þéttbýlinu.

34011 

Álverið í byggingu haustið 2006. Hólmanes í baksýn. Strompurinn sem sést á milli kerskálanna er 78 m. hár, eða svipaður á hæð og Hallgrímskirkjuturn! Og til enn betri glöggvunar á stærð þessa mannvirkis, má benda á bryggjukantinn en hann er 400 m. langur!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband