Færsluflokkur: Bloggar
Þetta er nýr texti við lagið söknuð með Villa Vill
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
Og heldur blankur, því er verr
Ef væri aur hjá mér, væri ég glaður
Betur settur en ég er
Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.
Við gátum spreðað, gengið um,
gleymt okkur í búðunum.
Engin svör eru við stjórnarráð
Gengið saman hönd í hönd,
Saman flogið niður á strönd.
Fundið stað, sameinað beggja lán.
Horfið er nú hlutabréf og lánsfé
Í veski mínu hefur eymdin völd
Í dag ræður bara sultarólin
Nú einn ég sit um skuldavönd
Eitt sinn verða allir menn að borga
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt verð ég að segja,
að lánið fellur allt of fljótt.
Ég horfi yfir bankann minn
Hugsi hvort hann hleypi mér inn
Ég alltaf gat treyst á þig
Í að fjármagna mig
Ég reyndar skulda allstaðar
Þá napurt er, það næðir hér
og nístir mig.
Nýr texti við ísland er land þitt
Ísland var land mitt, ég aldrei því gleymi,
Ísland í gjaldþroti sekkur í sæ,
íslensku krónun´í banka ei geymi
við íslenska hagkerfið segi ég bæ,
Ísland í erfiðum tímum nú stendur
Íslenska stjórnin hún failar margfallt
Íslenski seðillinn er löngu brenndur
Ísland er landið sem tók af mér allt
(höf. ókunnur)
Bloggar | 9.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggar | 8.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mér skilst að hákarlar séu frekar meinlausar skepnur að öllu jöfnu, en að sjálfsögðu eru undantekningar á því. Hundar eru líka oftast meinlausir en til eru dæmi um að þeir rífi manneskjur á hol og fyrir einhverjum misserum síðan tættu tveir heimilishundar 5 ára dreng í sundur í Belgíu.
![]() |
Kýldi hákarl kaldan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 5.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nei, þetta á ekkert skilt við animalisma heldur er þetta auglýsing um að óábyrgt kynlíf getur haft banvænar afleiðingar. Magnaðar myndir
![]() |
Alnæmisveiran eldri en talið var |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég þurfti að fara til Seyðisfjarðar í dag og tala við kennarana í grunnskólanum vegna umferðarfræðslu á Austurlandi. Krapasnjór var á Fjarðarheiðinni og vindhviður upp í 19 m. á sekúndu. Eins gott að ég fékk nýju nagladekkin í morgun.
Mér var tekið afskaplega vel af starfsliði skólans og nú steig ég í fyrsta skipti inn fyrir dyr í gamla grunnskólanum sem byggður var árið 1907. Þetta er afskaplega fallegt og reisulegt timburhús en mig rak eiginlega í rogastans þegar ég kom inn. Húsið er hreint út sagt stórkostlegt að innan og virkilega vel við haldið. Ég myndi segja að þetta hús sé þjóðargersemi. Eldri nemendum skólans er kennt í húsinu en þeim yngri í nýrri byggingu hinu megin við götuna. Húsið hentar auðvitað ekki sem kennsluhúsnæði í dag og Seyðfirðingar þurfa að eignast nýtt húsnæði fyrir starfsemina sem þar er og finna þarf annað verkefni fyrir þetta magnaða hús í dag. Mynd: http://jonhalldor.blog.is/blog/jonhalldor/
![]() |
Öxarfjarðarheiði ófær |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.10.2008 (breytt kl. 17:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)

![]() |
Djúpt snortinn og þakklátur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 1.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggar | 1.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 1.10.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Helga Guðrún "Blekpenni" og aðrir óþverapennar er fyrirsögn bloggfærslu Heiðu B. Heiðars. Mér finnst það alltaf nett hlægilegt þegar fólk er öskureitt í bloggheimum. En það er kanski bara holt að blása út öðru hvoru, svo framarlega sem menn ráðast ekki á persónur manna. Það er allt í lagi að gagnrýna skoðanir samt.... bara fínt.
En að ná ekki upp í nefið á sér fyrir reiði vegna einhverra bloggskrifa er voðalega sætt Spurning hvort ekki væri viturlega að skrifa þá bara í fjörusandinn og láta næsta aðfall um að má það út.
Örugglega hægt að herma þetta upp á marga, að halda í sér viðrekstrinum, en þó ekki mig . Ég verð seint sakaður um það.
Bloggar | 30.9.2008 (breytt kl. 17:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Harmleikurinn er ekki bar illska hinna vondu, heldur einnig þögn hinna góðu. Kannast ekki allir við að hafa orðið vitni að einelti án þess að gera neitt í því?
Skoðið þessa síðu: http://olweus.is/
![]() |
Ætlaði að pynta þau og drepa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.9.2008 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 40
- Frá upphafi: 947661
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 38
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Launamunur eftir menntun og aldri
- Að það geti verið að ríkisstjórnir landa eins og USA og kína séu farnar að geta STJÓRNAÐ VEÐRINU, með því að fikta í skýjunum með því að sprauta einhverjum efnum í skýin?
- LGB klífur sig frá trans hreyfingum víða um heim
- Hverfur loftnetssjónvarpið - fær almenningur reikninginn?
- Viðreisn, byltingin í Kiev og ófriður á Íslandi
- Samfylkingn er bara sósíalstaflokkur fyrir aðra.
- Öldruðum í bið eftir hjúkrunarrými fjölgar um 63%
- Viðreisn á fullu inn í sambandsríkið
- Misráðin viðurkenning
- Þrengt að almenningi