Nagladekkin undir - Seyðisfjörður

Mynd 423976Ég þurfti að fara til Seyðisfjarðar í dag og tala við kennarana í grunnskólanum vegna umferðarfræðslu á Austurlandi. Krapasnjór var á Fjarðarheiðinni og vindhviður upp í 19 m. á sekúndu. Eins gott að ég fékk nýju nagladekkin í morgun.

Mér var tekið afskaplega vel af starfsliði skólans og nú steig ég í fyrsta skipti inn fyrir dyr í gamla grunnskólanum sem byggður var árið 1907. Þetta er afskaplega fallegt og reisulegt timburhús en mig rak eiginlega í rogastans þegar ég kom inn. Húsið er hreint út sagt stórkostlegt að innan og virkilega vel við haldið. Ég myndi segja að þetta hús sé þjóðargersemi. Eldri nemendum skólans er kennt í húsinu en þeim yngri í nýrri byggingu hinu megin við götuna. Húsið hentar auðvitað ekki sem kennsluhúsnæði í dag og Seyðfirðingar þurfa að eignast nýtt húsnæði fyrir starfsemina sem þar er og finna þarf annað verkefni fyrir þetta magnaða hús í dag.  Mynd:   http://jonhalldor.blog.is/blog/jonhalldor/

gamli_skolinn

Gamli skólinn á Seyðisfirði


mbl.is Öxarfjarðarheiði ófær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband