Færsluflokkur: Bloggar

Stjórnmálamenn á tilboði

c_documents_and_settings_notandi_my_documents_my_pictures_c_serstakttilbod_164637

Þessi gamla auglýsing stendur fyrir sínu. Tilboðið stendur reyndar bara til 25. apríl


mbl.is Ódýrast í Bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Asmasjúklingar í framvarðasveit

Það er athyglisvert ef vinstrimenn samþykkja ekki piparúða, af því það getur verið vont fyrir asmasjúklinga. Eru mótmælendur að nota asmasjúklinga sem skjöld í sinni fremstu víglínu?

Minnir á aðferðarfræði hryðjuverkamanna í Mið-Austurlöndum, sem uppvísir hafa orðið af því að nota konur og börn sem mannlega skyldi gegn árásum óvinarins.

Bendi á skoðanakönnun hér til hliðar.


mbl.is Tekist á um piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólarkaffið nálgast á Reyðarfirði

Í þorpinu á Reyðarfirði sést sólin ekki í 3 mánuði á ári, frá ca. 11. nóvember til 7. febrúar. Það er þó að sjálfsögðu aðeins misjafnt hvenær sólin fer að skína inn um glugga hjá fólki, en það munar þó ekki nema 2-3 dögum.

Á tunglmyndinni hér að neðan sem ég nappaði af bloggsíðu Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræðings, má sjá að stutt er í að sólin vermi norðurhlíðina fyrir botni Reyðarfjarðar þar sem þorpið er staðsett. Myndin er tekin mánudaginn 2. febrúar kl. 12.58, þegar sólin er hæst á lofti. Ég setti ör ákortið fyrir þá sem ekki vita nákvæmlega hvar Reyðarfjörður er.

Landið okkar er listaverk, líka séð úr geimnum InLove

island02022009

Smellið tvisvar á myndina til að fá hana stærri


Flottir skór með táfýlu

Þessir eru flottir!

8


mbl.is Minnisvarði skókastarans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er ferskur í VG?

Steingrímur, Ögmundur, Kolbrún, Þurríður, Álfheiður, Jón Bjarnason? Er þetta ekki glæsilegt lið?

getfileJón Bjarnason fór í VG af því að framsóknarmenn vildu hann ekki. Ég þekki nokkra stuðningsmenn VG og flest er þetta hið vænsta fólk. Fleiri en einn af þessu fólki hefur sagt mér að það skammist sín hálfpartinn fyrir mannvalið í flokknum og einn þeirra, sem kosið hefur flokkinn frá upphafi og þar áður Alþýðubandalagið, er búinn að gefast upp á þessu liði.


mbl.is Ásta: VG hræðist að grasrótin leiti annað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömlu mánaðaheitin

Ég var með tvo rétta af tólf mögulegum þegar ég prófaði þekkinguna á gömlu mánaðarheitunum. Var bara með Þorra og Góu rétt. Prófið sjálf: http://www.nams.is/dagsins/manudir.htm 

1


Mótmælaþráhyggja

antiwar_protesters

Ég hefði haldið að kosningar í vor væri bara nokkuð gott


mbl.is Mótmælt við Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi í útvarpinu

Hluti af ökukennaranáminu mínu er að skila 28 tímum í ökuskóla, 14 tímum í áheyrn og 14 í kennslu. Í kvöld, mánud.kvöld var fyrsta mæting hjá mér í Ökuskóla Austurlands, en kennslan fer fram í Fellabæ, sama húsnæði og "Svarthvíta hetjan" pöbbinn, var til húsa á sínum tíma. Tæplega 30 ökunemar voru mættir og koma þeir sennilega af öllu Mið-Austurlandi.

bubbiÁ heimleiðinni niður á Reyðarfjörð hlustaði ég á þátt Bubba Morthens á Rás2, "Færibandið", í fyrsta skiptið og viðmælandi Bubba var prófessor Njörður P. Njarðvík. Niðurstaða mín eftir tæplega hálftíma hlustun er sú að Bubbi á ekkert erindi með útvarpsþátt í útvarpi allra landsmanna. Þetta var minna spennandi en að hlusta á kaffistofuspjall í illa lyktandi verbúð í krummaskuði á Austfjörðum. Kannski Bubba takist betur upp ef viðmælendur hans eru á einhverju svipuðu róli og hann sjálfur, en þetta pólitíska spjall hans við prófessorinn var skelfilegt svo ekki sé meira sagt.

Bubbi á ekki að setja sig í gáfumannastellingar. Ég hefði hugsanlega haft gaman af að heyra Bubba spjalla við einhvern úr "bransanum", en þetta var eiginlega bara neyðarlegt.

 


Men at work

menatwork
mbl.is Akkur í að hafa konur í ábyrgðarstöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pilla við öllu

cindy-mccain-pill-headMargir vilja meina að óeðlileg tengsl séu milli lækna og lyfjafyrirtækja. Að læknarnir hagnist á því persónulega að vísa á tiltekin lyf og fái í staðinn boðsmiða á lyfjaráðstefnur á fjarlægum og spennandi stöðum í veröldinni. Einnig fá læknar á heilsugæslustöðvum borgað fyrir hverja heimsókn  og þess vegna er "bráðnauðsynlegt" að þeir fái að fylgjast með sjúklingnum sem lengst... hvernig pillan virkar o.s.f.v.

ear0308l


mbl.is S-lyfjakostnaður jókst um 39,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband