Könnun á Austurlandi

Sl. haust gerði Capacent Gallup könnun á viðhorfum og væntingum gagnvart Alcoa álverinu á Reyðarfirði. Fréttatilkynningin um niðurstöður könnunarinnar fór ekki hátt, en hún var athyglisverð og algjörlega á skjön við fullyrðingar álvers og virkjanaandstæðinga. Nýlega heyrði ég þingmann VG segja að áhrif álversins væru vonbrigði fyrir Austfirðinga.

UntitledSpurt var:

Telur þú að álver Alcoa á Reyðarfirði hafi haft jákvæð eða neikvæð áhrif á búsetuskilyrði á Austurlandi?

Eins og sjá má á kökunni hér til hliðar er niðurstaðan afgerandi. Þrátt fyrir þessa könnun, sem ég er fullviss að þingmönnum VG hafi verið kunnugt um, þá halda þeir áfram að ljúga að almenningi og segja að Austfirðingar séu nú að átta sig á að þetta voru allt saman tóm mistök. Mistök sem þeir vöruðu við.

Allir hafa rétt á sinni skoðun, en kjörnir fulltrúar VG á Alþingi ljúga og blekkja þjóðina í gengdarlausum bulláróðri, til þess að fá þá sem ekki vita betur, í lið með sér. 

 


mbl.is 88% ánægð með líf sitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórskyttuefni

c28d96e7e1a225Frá því Ísland komst á heimskortið í handbolta, sennilega 1964 (eða var það 1961?), þá hafa margir erlendir handboltaspekingar undrast hversu mikið okkar litla þjóð hefur átt af góðum rétthentum langskyttum. Við höfum virst framleiða slíka handboltamenn á færibandi. Það færiband hefur reyndar hökkt dálítið síðastliðinn áratug en höfum þess í stað átt afburða handboltamenn í nánast öllum öðrum stöðum á vellinum.

Í dag er Aron Pálmarsson klárlega ein efnilegasta rétthenta skyttan í heimninum í dag. En hann er ekki bara góð skytta heldur hefur hann allt sem góðan handboltamann þarf að prýða.

Það verður gífurlega spennandi að fylgjast með pilti á næstu árum.


mbl.is Aron í aðgerð hjá Kiel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stupid criminals?

DonutPolicePatch_ezrÞær eru stundum skemmtilegar sögurnar af heimskum glæpamönnum og ekki eru þær síðri sögurnar af löggum sem reiða ekki vitið í þverpokum.

Ég hef þó mikla samúð með lögregluþjónunum á Suðurnesjum sem létu handjárnaðan eiturlyfjasmyglara sleppa frá sér. Þetta er skelfilega neyðarlegt fyrir þá, svo ekki sé meira sagt.

Hér koma nokkrar myndir af löggum í stuði.

 

 

 

formula1

police_and_ostrich-13039

a1

police

2615

 

 

 

 

 

001stupid_police_dog

 

 

 

 

 

27


mbl.is Enn leitað að Belganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun

Ég hef verið með skoðanakönnun hjá mér um hvað fólk ætlar að kjósa í komandi Alþingiskosningum. 500 manns hafa nú svarað og niðurstaðan er eftirfarandi:

Spurt er: Hvað ætlarðu að kjósa?

Sjálfstæðisflokkinn 21,6%
Samfylkinguna 17,2%
VG 20,2%
Frjálslyndaflokkinn 4,6%
Framsóknarflokkinn 7,0%
Borgarahreyfinguna 6,6%
L- listann 14,4%
Annað 1,4%
Skila auðu 7,0%
500 hafa svarað

Þarna er Sjálfstæðisflokkurinn stærsti stjórnmálaflokkurinn og mig grunar að svo verði eftir kosningarnar 25. apríl og að vinstriflokkarnir nái ekki hreinum meirihluta. Framsóknarflokkurinn mun draga þá að hinu pólitíska altari og verða vottur að hinu heilaga hjónabandi þeirra í næstu ríkisstjórn. Næsta spurning hlýtur því að vera:

Mun hjónabandið halda út næsta kjörtímabil? Endilega segið ykkar álit í könnuninni hér til hliðar.


mbl.is „Hættið þessu helvítis væli"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkur fyndin lógó

google_logo_funny

146231578_483f9bab2b

logo-parodies

recession-logos


mbl.is McDonalds mótmælir skilti nektardansstaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lélegt

goooal08wg-1Það er eins og Íslendingar þurfi að fá á sig mark til þess að þeir spili eins og menn. Það er a.m.k. mín upplifun á leik liðsins í undanförnum leikjum. Seinni hálfleikur var mun betri en sá fyrri hjá okkur og alveg grátlegt að ná ekki að jafna í lokinn þegar tvö dauðafæri fóru forgörðum.

Bjarni Ólafur Eiríksson á greinlega ekkert erindi í landsliðið því hann er alltof svifaseinn og bara pínlegt að horfa upp á trekk í trekk þegar hann var skilinn eftir af vængmönnum Skota.


mbl.is Naumur sigur Skota á Hampden, 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að sýna þessu umburðarlyndi?

muslimÞað heyrist stundum  hjá sumu fólki, að menning og saga í múslimaríkjum sé löng og virða beri þær hefðir sem þar viðgangast. Ég er ósammála því. Þeir sem vilja virða mannréttindi eiga aldrei að samþykkja svona vitleysu, því vitleysa er þetta og ekkert annað.

Það er stundum sagt að múslimar séu mismunandi. Öfgasinnaðir bókstafstrúarmenn.... og svo "hófsamir" múslimar. Ef ég sem kristinn maður, líð fyrir það að öfgahópar kristinna manna hagi sér með ósæmilegum hætti einhversstaðar, þá myndi ég láta í mér heyra. En gera hinir "hófsömu" múslimar það? Ef svo er, þá hefur það algjörlega farið fram hjá mér.


mbl.is Karlar fá meiri völd yfir konum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pissar bara úti

Það hlýtur að vera óbærilegt fyrir grey mennina að vera þarna saman í ósætti. Það er ekki eins og að þeir fari bara eitthvað annað Errm

pissa


mbl.is Ósætti í geimnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningar? Nei. Hjálpa þjóðinni? Já

e499fad9a4b8e601d0197adceb9f1a25_300x225 Í Kastlljósviðtali einhverntíma fyrir áramót, sagðist Björgólfur Thor aðspurður hvort hann hyggðist skila einhverjum peningum aftur inn í bankann sinn, nei, það gæti hann ekki. En að hjálpa þjóðinni út úr vandræðunum... já, það gæti hann.

Á myndinni hér til vinstri, sést Björgólfur yngri svipast um eftir geislabaugnum sem hann hélt að væri yfir höfði sér.


mbl.is Samson greiddi fé til Tortola
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er laus

Fyrir þá sem ekki vita, þá rek ég leigubíl hér á Reyðarfirði. Heimahöfn Norrænu er skammt héðan frá og ég geri tilboð í Evrópuferðir Cool

1-636

 


mbl.is Tóku leigubíl frá Tékklandi til Danmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband