Kreppan fer ekki í manngreiningarálit.
![]() |
Krepputilboð á vændishúsum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 27.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þó úrslit kosninganna séu vissulega vonbrigði fyrir hægrimenn á Íslandi, þá berum við höfuðið hátt. Nú verðum við í stjórnarandstöðu í einhvern tíma, að hámarki í 4 ár en sennilega skemur þó. Ég vona að mínir menn taki ekki vinstriflokkana sér til fyrirmyndar í stjórnarandstöðunni, heldur verði málefnalegir en samt sanngjarnir. Ég þoli ekki tækifærismennsku.
Það er afar mikilvægt á næstu mánuðum að vel verði haldið á spilum í efnahagsstjórn landsins. Áhyggjur vegna getuleysis vinstrimanna á því sviði eru fyrir hendi hjá mörgum hægrimanninum og rangar ákvarðanir stjórnvalda geta dregið kjark úr athafnamönnum. Það er ekki það sem þjóðin þarf á að halda á þessum erfiðum tímum.
Sjálfstæðismenn voru með kosningavöku í Randolfshúsi á Eskifirði en það er sjóhús frá 19. öld með öllu tilheyrandi. Sævar Guðjónsson, ferðaþjónustufrömuður og góður Sjálfstæðismaður hefur umsjón með húsinu og staðurinn er vinsæll meðal ferðamanna, enda hreint út sagt frábær staður að heimsækja. Sævar rekur ferðaþónustufyrirtækið http://mjoeyri.is/
Í Randolfshúsi á Eskifirði í gærkvöldi. Meðal gesta var Tryggvi Þór Herbertsson sem skipaði 2. sætið á lista flokksins í Norð-Austur kjördæmi. Góðar veitingar voru í boði fyrir gesti og gangandi. Grillað lambalæri, kökur, snakk og harðfiskur.
![]() |
Nýtt Alþingi Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 26.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Stjórnmál og samfélag | 25.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Kristján Möller, ráðherra Samfylkingarinnar í vegamálum, gortaði af því fyrir nokkru (eftir stjórnarslitin við Sjálfstæðisflokkinn) að árið 2009 yrði annað stærsta ár í framkvæmdum í samgöngumálum, frá upphafi. 20 miljarðar til vegamála væru á áætlun á árinu.
Ég fullyrði það að Norðfjarðargöngum og mörgu fleiru verður kippt út af áætlunum, fljótlega eftir kosningar. En það er ekki atkvæðavænt fyrir kosningar að tilkynna kjósendum hvernig staðan raunverulega er.
Kristján Möller á Íslandsmetið í tækifærismennsku. Björgvin G. á drengjametið.
![]() |
Setur skilyrði fyrir lagningu Norðfjarðarvegar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Samgöngur | 24.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er með ólíkindum að fjölmiðlar skuli leita til Einars Mar Þórðarsonar sem hlutlauss álitsgjafa. Afhverju spyrja þeir ekki Hannes Hólmstein?
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir er holdgerfingur "vinstri slagsíðu" í fjölmiðlun. En holdgerfingarnir hafa verið fleiri og má þá í fljótu bragði nefna þau Björgu Evu Erlendsdóttur og Jóhann Hauksson. Vinstrimenn hafa oft haldið því fram að fjölmiðlum sé stjórnað af hægrimönnum. Það má vel vera, en það kemur þó ekki eins áberandi fram í fréttamatreiðslunni og þegar vinstrimenn eru annars vegar.
Ofangreindir fréttamenn hafa oft verið til vandræða á vinnustöðum sínum vegna þess hversu "litaður" fréttaflutningur þeirra hefur verið.
Man einhver eftir fréttamanni sem hægt er að stimpla sem hægrimann, út frá matreiðslu hans á fréttum, eftir að flokksblöðin liðu undir lok? Ekki ég.
![]() |
Sögulegar kosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | 24.4.2009 (breytt kl. 18:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hjá embætti lögreglustjórans á Eskifirði starfa tvær ungar konur sem lögreglumenn, önnur er nýtekin til starfa og er pólsk að uppruna og mun vera sú eina á landinu. Mikill fengur er í pólskumælandi lögregluþjóni, því hér á Austurlandi eins og annarsstaðar á landinu er töluvert um Pólverja. Hin er íslensk og "Berfirsk" (frá Berufirði
) að uppruna, en hún hefur verið nokkur ár í lögreglunni, m.a. í Reykjavík. Hún heitir Snjólaug Eyrún Guðmundsdóttir og hefur ásamt hefðbundnum lögreglustörfum, umsjón með forvarnarstarfi lögreglunnar í grunnskólum í Fjarðabyggð.
Ég hef tekið að mér, í langvinnum forföllum eins kennarans við Grunnskólann á Reyðarfirði, "starfsfræðslu", sem er námsval, fyrir nemendur í 9. - 10. bekk. Í tengslum við það fékk ég Snjólaugu til þess að koma og halda fyrirlestur fyrir krakkana til þess að kynna þeim lögreglustarfið. Óhætt er að segja að Snjólaug hafi slegið í gegn í fyrirlestrinu því krakkarnir voru afar áhugasamir um starfið og spurðu margra spurninga. Snjólaug kom vel undirbúin með "power-point show" og fór vítt og breytt yfir starf lögreglunnar og krakkarnir voru sammála um að það er ótrúlega fjölbreytt.
Hér er Snjólaug í kennslustofu 10. bekkjar í Grunnskóla Reyðarfjarðar
![]() |
Ekki refsað fyrir að geyma fíkniefni í fangaklefa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menntun og skóli | 24.4.2009 (breytt 25.4.2009 kl. 13:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Steingrímur J. Sigfússon sagði á fundinum að ef ríkið kæmi inn í Flugleiðir þá opnist möguleikar á pólitískri ákvarðanatöku um "þjóðfélagslega hagkvæma áfangastaði".
Steingrímur og flokkur hans, VG ...... úff!
![]() |
Tilhæfulaust að ríkið taki Icelandair yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kæru vinstrimenn og andstæðingar mínir í pólitískum skoðunum.
Kolbrún Halldórsdóttir, umhverfisráðherra, sagði í fréttum Stöðvar 2, að Vinstrihreyfingin-grænt framboð leggðist gegn olíuleit á Drekasvæðinu svonefnda enda sé olíuvinnsla í andstöðu við stefnu flokksins.
Í réttlátri reiði almennings í landinu, hefur tæplega þriðjungur þjóðarinnar, samkvæmt skoðanakönnunum, látið ergelsi sitt í ljós með því að segjast ætla að kjósa VG. Ég vona að fólk nái áttum fyrir laugardaginn 25. apríl
![]() |
VG gegn olíuleit á Drekasvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Að tala um mútufé eða eitthvað álíka, finnst mér vera alltof djúpt í árina tekið, en siðferðisbrestur og dómgreindarleysi.... já, klárlega.
Bara tortryggnin og efinn um heilindi viðkomandi stjórnmálamanna er afurðin af því að þyggja svona styrki. Ég reikna ekki með að nokkur stjórnmálamaður kjósi sérstaklega að bera slíka byrði og því er viðtaka styrkja af þessari stærðargráðu algjört dómgreindarleysi. Og ef það er algjört dómgreindarleysi og siðferðisbrestur í ofanálag, þá eru "þyggjendurnir" um leið vanhæfir til þess að gæta hagsmuna almennings.
Það tala margir um að það þurfi að byggja upp landið að nýju. Ég vil helst gera það án þeirra aðila sem gerst hafa sekir um siðferðisbrest og dómgreindarleysi, sama hvaða flokki þeir tilheyra. Það er mín skoðun.
![]() |
Steinunn Valdís fékk fjórar milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 22.4.2009 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hér koma nokkrar staðreyndir um álver Alcoa í Reyðarfirði:
Framleiðsla og útflutningur
Fjarðaál í Reyðarfirði er flaggskip Alcoa Inc. álfyrirtækisins og nýjasta og fullkomnasta álverið í eigu þess. Framleiðsla hófst í álverinu 12. apríl árið 2007 og ári síðar var það komið í fullan rekstur. Alcoa framleiðir um 346.000 tonn af áli til útfutnings á ári. Þetta er hreint gæðaál, álblöndur sem meðal annars eru notaðar í bifreiðaiðnaði og álvírar sem meðal annars eru notaðir í háspennustrengi.
Alcoa Fjarðaál flutti út ál fyrir rúmlega 800 milljónir dollara árið 2008, sem svarar til 92 milljarða króna miðað við gengi dollars í febrúar 2009. Ætla má að yfir þriðjungur útfutningstekna fyrirtækisins verði eftir í landinu. Tæp 40% allra vöruflutninga frá landinu er ál. Vöruútflutningur frá Íslandi jókst um fjórðung í tonnum talið með tilkomu Alcoa Fjarðaáls. Mjóeyrarhöfn í Reyðarrði er nú önnur stærsta höfn landsins og um hana fara 1,3 milljónir tonna af áli og aðföngum á ári.
Starfsmenn
Hjá Fjarðaáli starfa 450 manns. Um 250-300 manns til viðbótar starfa á álverssvæðinu, við störf nátengd álverinu. (Við þetta bætast nokkur hundruð bein og óbein störf víða um land) Um þriðjungur starfsmanna Alcoa Fjarðaáls er konur sem er hærra hlutfall en í nokkru öðru álveri Alcoa. 30% starfsmanna Alcoa Fjarðaáls eru á aldrinum 40 til 49 ára. Tæp 20% starfsmanna eru eldri en 50 ára. Um 40% starfsmanna eru með háskóla- eða tæknimenntun. Gert er ráð fyrir að Alcoa Fjarðaál greiði tæpa 3,7 milljarða króna í laun og launatengd gjöld árið 2009.
Aðkeypt þjónusta
Alcoa Fjarðaál keypti ýmsa þjónustu á Íslandi fyrir 9,5 milljarða íslenskra króna árið 2008, fyrir utan raforku. Alcoa Fjarðaál kaupir um 5.000 gígawattstundir af raforku á ári. Til samanburðar er rafmagnsnotkun almennra raforkunotenda á Íslandi um 3.500 gígawattstundir. Samningur Alcoa við Landsvirkjun um raforkukaup er til 20 ára og mögulegt er að framlengja hann um önnur 20 ár.
Samfélagsleg áhrif
Tekjur sveitarfélaga á Austurlandi vegna starfsemi Alcoa Fjarðaáls námu um 800 milljónum króna árið 2008. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands mat það svo að landsframleiðsla ykist um 1,2% með tilkomu álvers Alcoa Fjarðaáls.
Íbúum í Fjarðabyggð fjölgaði úr 3.995 árið 2002 í 4.736 árið 2008, eða um 19%. Meðallaun á landsbyggðinni hafa verið hæst á Austurlandi frá árinu 2002.
Alcoa Fjarðaál og Samfélagssjóður Alcoa hafa veitt rúmlega 300 milljónir króna í samfélagsstyrki á Íslandi frá árinu 2003 til 2008.
Áróðurinn
Þeir sem hafa verið á móti Kárahnjúkavirkjun og þar eru auðvitað V-grænir fremstir í flokki, hafa ítrekað reynt að ljúga að þjóðinni (með sorglega góðum árangri) að tap sé á virkjuninni og þjóðhags og samfélagsleg áhrif sé lítil sem engin. Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að álverið hafi skaðað Austurland. Þessi málflutningur er í hróplegri andstöðu við það sem íbúarnir sjálfir á svæðinu hafa um málið að segja. Stundum vitna andstæðingar þessara framkvæmda sigri hrósandi í íbúa á svæðinu, sem segja að álverið og virkjunin hafi verið mistök.
Samkvæmt skoðanakönnun sem gerð var meðal íbúa á Mið-Austurlandi s.l. haust, eru þeir sem telja að álverið hafi haft neikvæð áhrif á búsetuskilyrði fyrir austan, einungis 3,9%. Þarna er verið að spyrja fólk sem reynt hefur á eigin skinni hvaða þýðingu svona atvinnutækifæri hefur haft á svæðinu. En áróðursmeistarar stóriðjuandstæðinga og meira að segja formaður VG, Steingrímur J. Sigfússon sjálfur, segir þjóðinni það blákalt í andlitið, að æ fleiri séu að vakna upp við þann vonda draum sem framkvæmdirnar fyrir austan hafi reynst vera. Það er greinilegt að markhópurinn fyrir þennan málflutning Steingríms, getur ekki verið sami hópurinn og Capasent Gallup spurði álits.
Spurt var í könnuninni:Telur þú að álver Alcoa á Reyðarfirði hafi haft jákvæð eða neikvæð áhrif á búsetuskilyrði á Austurlandi?
![]() |
Álið leysir vandann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
stóriðja og virkjanir | 22.4.2009 (breytt kl. 16:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 947166
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Leikarinn sem ekki var tekinn alvarlega og ekki fékk nógu alvarleg og virðuleg hlutverk að reyna sig við, Peter Sellers, snillingurinn í gríni
- Nógu kalt
- Stórmál eða smámál?
- Er Evrópa að falla?
- Sósíalistar allra landa, sundrist!
- Þegar börn kenna börnum
- Þingeyri > Ísafjörður - sjálfsagt óvinsæl skoðun
- Kongó & Rúanda semja frið í Washington ...
- Þetta er banani því Hamas segir það
- Nýjasta vopn ESB gegn Viktor Orbán: Karlar í brjóstahöldurum og háhæluðum skóm