Hjólað í vinnuna

Ef ég ætti reiðhjól, þá myndi ég frekar hjóla í vinnuna en skjögrast um á Trapant. Þessir bílar hafa aldrei heillað mig en sumir virðast taka miklu ástfóstri við þessar dollur. Það er eins og að mig minni að til sé félagsskapur Trabant-eigenda... er það ekki?

  http://hjoladivinnuna.is/Heim  á vegum ÍSÍ, fer fram 6. - 26. maí í ár. Starfsfólk Grunnskólans á Reyðarfirði tekur þátt af miklum krafti og hafa stofnað tvö lið og svo er fyrirhugaður sérstakur hjóladagur með nemendum skólans í lok maí, þar sem lögreglan mun yfirfara hjól og björgunarsveitin Ársól mun verða með fræðslu um notkun reiðhjólahjálma. Krökkum 15 ára og yngri er skylt samkvæmt lögum að nota þann sjálfsagða öryggisbúnað en ekki þeim eldri, sem er óskiljanlegt. Hegðun og atferli fullorðna fólksins í umferðinni er krökkunum fyrirmynd og að sjálfsögðu eiga ALLIR að nota hjálm, eins og t.d. öryggisbelti í bíl.

Lögreglan á Íslandi mætti e.t.v. tak kollega sína í Danmörku sér til fyrirmyndar? Smile

Þessi er nokkuð smellin

hjolað

 


mbl.is Trabantinn lifði dauðann af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiður heiðursmaður

getfileEiður Smári var í sömu sporum og fyrrum félagar sínir hjá Chelsea voru í gærkvöldi, þegar Porto sló þá út í fjórðungsúrslitum fyrir nokkrum árum. Eiður felldi þá tár í leikslok, svo hann skilur vel tilfinningar vina sinna, John Terry og Frank Lampard. Jose Morhino var þá þjálfari Porto.

Það má segja að Barcelona hafi stolið sigrinum og úrslitin hafi verið ósanngjörn, en ég er ánægður með þetta. Úrslitaleikurinn verður mun skemmtilegri með Barca og United.


mbl.is Eiður Smári: Vildi ekki fagna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

G-strengur, flott mynd

G-strengir geta verið skemmtilegir LoL

GString

Hahhah.... við hverju bjóstu?

lola_luna_malaga

Jæja, ok.... þið fáið smá kaupbæti Joyful

244676016_tp

Og smá fyrir femínista LoL


mbl.is Fyrsti G-strengur heims á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um raforkuverð á Íslandi

Það heyrist með reglulegu millibili og þá aðallega frá andstæðingum stóriðju á Íslandi,  að almenningur niðurgreiði orkuverðið til stóriðjunnar. Engin rök eru færð fyrir þeirri fullyrðingu heldur bent á að orkuverði til álfyrirtækja á Íslandi sé haldið leyndu og grunur leiki á að það sé einungis 1/8 af verði til neytenda og sé  ástæða til að ætla að orkuverð til neytenda sé ekki sanngjarnt og líklegt, að leynd yfir orkuverði til álbræðslu samræmist ekki reglum ESB/EES.

Það væri auðvitað óskandi að hægt væri að upplýsa almenning um raforkusamningana við álfyrirtækin til að eyða þeirri tortryggni sem virðist ríkja. Þann 8. apríl sl. skrifaði Gústaf Adolf Skúlason, aðstoðarframkvæmdastjóri Samorku, upplýsandi grein í Fréttablaðið um þessi mál:

"Um 80% raforkunnar hér á landi fara til stóriðju. Raforkuverð til heimila er mun lægra hérlendis en í flestum okkar nágrannalöndum. Þannig kostar meðalheimilisnotkun á rafmagni í Reykjavík einungis um fjórðung af því sem hún kostar í Kaupmannahöfn. Ennfremur hefur almennt raforkuverð árum saman farið lækkandi hér á landi, að teknu tilliti til þróunar vísitölu verðlags, samhliða aukinni raforkusölu til stóriðju. Sumt fólk nær fá út úr þessu samhengi almenningur greiði niður orkuna til stóriðjunnar, sem er ótrúleg niðurstaða. Stærstu viðskiptavinirnir, stóriðjufyrirtækin, greiða hins vegar lægra verð en þeir sem kaupa margfalt minna magn, líkt og gildir um flestar tegundir viðskipta. Langtímasamningar um stöðuga sölu á raforku eru afar hagstæðir fyrir orkufyrirtækin,auk þess sem stóriðjan ber sjálf kostnað við dreifingu raforkunnar, sem alla jafna er a.m.k. þriðjungur orkuverðsins. Að selja orkuna til álvera er engin stefna. íslensk orkufyrirtæki kjósa einfaldlega hagstæðustu viðskiptin sem bjóðast hverju sinni.

Á  http://samorka.is/ nálgast fleiri upplýsingar um orkumál og stóriðju, í formi stuttra og aðgengilegra punkta".

Rafmagnið ódýrast á Íslandi, fjórðungur verðsins í Danmörku (23.02.2009)

Rafmagnsverd_small.gif Samorka hefur borið saman rafmagnskostnað heimila í höfuðborgum Norðurlandanna. Rafmagnið er ódýrast í Reykjavík en litlu dýrara í Helsinki. Í Osló er rafmagnið um 35% dýrara en í Reykjavík og um 63% dýrara í Stokkhólmi. Í Kaupmannahöfn er rafmagnið hins vegar langsamlega dýrast, eða meira en fjórfalt dýrara en í Reykjavík.


mbl.is Kvarta til ESA vegna orkuverðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hataður af feministum

Berlusconi er eins og Davíð Oddsson að því leyti til að hann opnar varla munninn án þess að hálf Ítalía og Vatikanið með, fari á hliðina. Berlusconi er mikill gleðimaður og ótrúlegt að kallinn skuli vera kominn á áttræðis aldur. Lítur ekki út fyrir að vera degi eldri en sextugur.

berlusconi


mbl.is Berlusconi snupraður í fjölmiðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röksemd Samfylkingarinnar

Samfylkingarmenn telja að nú sé lag að sækja um aðild að Evrópusambandinu af því að formaður þess er Svíi. Aumari rök hef ég ekki heyrt. Ef formennska einhvers Svía er forsenda aðildarumsóknar Íslendinga nú, þá er eitthvað brogað við þetta blessaða samband.  Auk þess hafa Svíar ekki alltaf verið okkur hliðhollir í alþjóðamálum. Og hver man ekki eftir Staffan (Faxa) Olson? GetLost

eu%20borg%20collective_lrez

Smæsti minnihlutahópurinn í heiminum er einstaklingurinn. Þeir sem afneita rétti einstaklingsins, geta ekki sagst vera verjendur minnihlutahópa.


mbl.is ESB-málið til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Delirium tremens

Delirium tremens 

Ég er hraustur, ég er veikur,

ég er hryggur, glaður þó.

Ég er óhræddur, ég er smeikur,

ég er snauður, ríkur nóg. 

Elska gjörvallt, allt þó hata,

allt ég veit og neitt þó skil.

Öllu bjarga og öllu glata,

á augnabliki sama ég vil.

 Ég er fús og ég er trauður,

ég ber glaður votan hvarm.

Ég er lífs og ég er dauður,

ég er sæll og bý við harm. 

Ég er óður, ég er hægur,

ég kýs allt og ekkert vil.

Ég um alla jörð er frægur,

ég hef aldrei verið til.

Þessi skemmtilegi texti er við lag sem við nokkrir karlar í Kirkjukór Reyðarfjarðar erum að æfa þessa dagana, en kórinn heldur tónleika í Kirkju og menningarmiðstöðinni á Eskifirði síðar í maí. Á nótnablaðinu stendur Franz Otto, en ég veit ekkert meir um þann ágæta mann.Textinn er mjög gamall, því "ég" er skrifað "jeg" og ég held að slíkur ritháttur hafi lagst af snemma á síðustu öld.Við karlarnir tökum þrjú lög á tónleikunum.

Kirkjukórinn, sem er auðvitað blandaður kór, er á leið til Færeyja á Ólafsvöku í lok júlí í sumar og prógrammið okkar er geysilega fjölbreytt og skemmtilegt. Meðal laga á efnisskránni er t.d. hið frábæra lag hljómsveitarinnar Queen, "Bohemian rapsody"


Vítt og breitt

"Búsáhaldabyltingin", krafðist athafna strax fyrir alþýðu landsins. Margir hafa fullyrt að þessi meinta bylting hafi verið skipulögð af VG.

Vinsririhreyfingin grænt framboð er afleggjari Alþýðubandalgsins sáluga.....  sem var afleggjari sósíalista og þar áður kommúnista. Nú, þegar valdið  er í höndum "alþýðunnar", hlýtur eitthvað að fara að gerast. Nú hljóta patentlausnirnar að vera innan seilingar.

Samfylkingin og VG eru með þetta allt á tæru.


mbl.is Ný ríkisstjórn um næstu helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri óþægindi hafa komið í ljós

Útbrotin er bara  byrjunin á vandamálum kvenna sem klæðast undirfatnaði frá fyrirtækinu. Nú hefur komið í ljós að einhverskonar hormónaefni er notað við framleiðsluna og útkoman er eins og sjá má á myndinni. Konan hafði eingöngu notað Victoria's Secret í um þrjú ár.

Victoria´s secret

victorias_secret

Svona endar þetta fyrir lengra komnar Errm

victoriasecret

 


mbl.is Í mál við Victoria's Secret
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða helv... friði?

"Greenpeace náttúruverndarsamtökin hafa strax stimplað fyrirætlun hvalveiðiríkjanna sem "alvarlegt skref aftur á bak" og ásaka hvalveiðiþjóðir um að stefna í hættu friðinum sem nýlega hefur komist á innan Alþjóðahvalveiðiráðsins".

Já, já, það er allt með friði og spekt svo lengi sem öfgakenndir náttúruverndarsinnar fá að ráða.

Náttúruverndaramtök sem missa trúverðugleika sinn með bull málflutningi, geta verið í raun hin mestu hryðjuverkasamtök sem fyrirfinnast gegn náttúrunni. Hugsandi fólk verður afhuga öfgasamtökum og þau náttúruverndarsamtök sem ekki flokkast sem öfgakennd, eiga æ erfiðar uppdráttar vegna orðsporsins sem Árni Finnsson og félagar hafa markað. Á þessari vefsíðu má lesa eftirfarandi:

I observed that none of my fellow directors had any formal science education. They were either political activists or environmental entrepreneurs. Ultimately, a trend toward abandoning scientific objectivity in favor of political agendas forced me to leave Greenpeace in 1986.

The breaking point was a Greenpeace decision to support a world-wide ban on chlorine. Science shows that adding chlorine to drinking water was the biggest advance in the history of public health, virtually eradicating water-borne diseases such as cholera. And the majority of our pharmaceuticals are based on chlorine chemistry. Simply put, chlorine is essential for our health.

My former colleagues ignored science and supported the ban, forcing my departure.

Á seinni árum hafa þeir sem eru  lengst til vinstri í hinu pólitíska litrófi stjórnmálanna, fjarlægst hinar vinnandi stéttir. Skjólstæðingar þeirra, verkamennirnir hafa fyrir löngu misst alla tiltrú á þeim og vinstrimenn urðu því að bregðast við minnkandi fylgi með einhverjum hætti. Töfraorðið var náttúruvernd og vinstrimenn klæddust því græna búningnum. Í græna búningnum smeygja þeir sér inn á þjóðkjörin þing með hnefann á lofti. Ég veit ekki hvort það er tilviljun, en Alþjóðlegi jarðardagurinn er 22. apríl en það er einnig fæðingardagur Vladimir Lenin.

Oftar en ekki eru baráttuaðferðir Greenpeace samtakanna ólöglegar og fótgöngulið þeirra kemst þá gjarnan í kast við laganna verði. Eflaust hafa samtökin þó einhverntíma látið eitthvað gott af sér leiða, en hvort þetta sé satt og rétt sem kemur fram í þessari auglýsingu frá þeim treysti ég mér ekki til að dæma um.  Ágætar auglýsingar samt Joyful

greenpeace1

greenpeace2

greenpeace3

greenpeace4


mbl.is Hvalveiðiráðið í sjálfheldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband