Dæmigerð vinstri hugarvilla í Merði

TaxAir41409Mörður veit ekkert og kann ekkert um eðli skattheimtu.... frekar en aðrir vinstrimenn.

Ofurskattheimta ríkisstjórnarinnar hefur engu skilað. Með ofsköttun minnkar velta og virðisauki í þjóðfélaginu. 

Umferð hefur minnkað um 7% því fólk hefur ekki efni á að keyra bíla sína. Heimabrugg og smygl hefur stóraukist með ofsköttun á áfengi. Skattsvik aukast með hærri sköttum. Ofsköttun fækkar fyrirtækjum sem skila hagnaði, þau neyðast til að segja upp fólki vegna minnkandi umsvifa sem aftur leiðir af sér að í stað þess að fólkið borgi skatta, fær það bætur.

Fólk heldur áfram að flýja land á meðan þessi ríkisstjórn er við völd.


mbl.is Frumvarpið kostar 13 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var Hitler e.t.v. bara góður maður?

Tómur misskilningur

183


mbl.is Málverkasafn Hitlers fundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. (Jong)

Landflótti og atvinnuauðn...... veruleikafirrtur maður

steingrimur j (ong) sigfusson


mbl.is „Björguðum Íslandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slökkva ljósin og draga fyrir

iphone-youtube

Það er ekki þorandi orðið að gera neitt Woundering

Ég sá þetta í "status" á fésbókinni í dag:

 "VARÚÐ....Það eru tölvuhakkarar á facebook. Þeir setja klám myndbönd í þínu nafni á vegginn hjá öllum vinum þínum, án þess að þú vitir það. ÞÚ GETUR EKKI SÉÐ ÞAÐ en aðrir geta gert það. Ef þú hefur fengið svona myndband frá mér, er það ekki ég sem sendi þér þetta! Settu þetta á vegginn þinn svo ÞÚ getur varað aðra við því að lenda í þessu.."

Slökkva ljósin, draga fyrir og sængina upp fyrir haus Errm


mbl.is Íslenskur sérfræðingur fann gloppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eignaréttur og/eða einkanýtingarréttur

 Skilvirkasta leiðin til verndunar dýrastofna er að koma á eignarrétti eða einkanýtingarrétti á þeim. Eitt dæmi um slíkt eru villidýragarðar í Texas í BNA. Þessir garðar eru sjálfbærir því leyfðar eru veiðar í þeim gegn gjaldi. Og haldið ykkur nú fast... meira að segja á dýrum sem eru í útrýmingarhættu! Verðmiðinn á hverju veiddu dýri er frá 450 dollurum, upp í 50.000 dollara. Þessir villidýrabúgarðar skapa yfir 14.000 störf í Texas.

Dýrin eru í útrýmingarhættu í náttúrulegu umhverfi sínu, en ekki í Texas. En hverjir skyldu nú vera á móti því að leyfðar séu veiðar á þessum dýrum, veiðar sem í raun tryggja tilverugrundvöll þeirra?

Jú, alþjóðleg dýraverndunarsamtök. Þau hafa barist fyrir því í 7 ár að gera veiðar á þessum villidýrabúgörðum, ólöglegar. Í fréttakýringaþættinum 60 minutes er farið yfir þessi mál, afar athyglisvert. Sýndar eru myndir úr þessum görðum, viðtöl við búgarðaeigendurna, veiðimenn og forsvarsmann dýraverndunarsamtakanna sem vill ganga af þessum búgörðum dauðum.

Þáttinn má sjá HÉR. Að auglýsingunni lokinni er hægt að færa stikuna fram um 3/4 (29, 25 mínútur) en þar hefst umfjöllunin.

Ef þessari konu (myndin hér að neðan) og samtökum hennar tekst ætlunarverk sitt, þ.e. að gera veiðarnar ólöglegar, munu þessi dýr missa verndarsvæði sín og rúmlega 14.000 manns missa atvinnu sína.

Untitled

Mér datt í hug "gufusoðið grænmeti" þegar ég sá og hlustaði á konuna. Shocking


mbl.is Svartfuglafriðun fyrir ESB?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mozart skáklistarinnar

Í bandaríska fréttaskýringarþættinum 60 minutes er stórkemmtileg umfjöllun og viðtal við Magnus Carlsen, sterkasta skákmann veraldar í dag. Ísland kemur að sjálfsögðu við sögu í þættinum.

Þáttinn má sjá HÉR


Ingvi Hrafn / Glenn Beck

Það er oft gaman af mönnum sem tala tæpitungulaust. Ingvi Hrafn, sjónvarpsstjóri á ÍNN er einn þeirra. Annar og jafnvel enn umdeildari er Glenn Beck.

Vinstrimenn elska að hata þessa menn. Það er ekki laust við að svipur sé með þeim.... kannski eru þeir frændur? Joyful

Ingvi-Glenn


Hvað er þá evran?

Fíll í kristalsbúð? FootinMouth

Hvað er evran að gera fyrir Grikki? Svarið er auðvitað "verra en ekkert". Grikkir eru bjargarlausir varðandi gjaldmiðil sinn, evruna. Að fella gengið er eina tækið sem þjóð í alvarlegum peningavandræðum hefur. Ef Grikkir gætu fellt sinn eikagjaldmiðil, myndi það milda áfall þeirra til muna og hugsanlega bjarga þeim. Evran er dauðadómur Grikkja.

Gengisfelling er neyðarráðstöfun en öflugt tæki fyrir smáþjóðir.


mbl.is Krónan er fíllinn í stofunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gagnrýni á brauðfótum

Ferðafélag Íslands er að gera sömu mistök og náttúruverndarsamtök hafa ítrekað gert, en það er að rökstyðja mótmæli sín með eigin arðsemisútreikningum á fyrirhuguðum framkvæmdum.

Mér finnst rök FÍ fyllilega standa fyrir sínu, þ.e. að virkjunin vegi að hagsmunum félagsins. Það vantar hins vegar í rökin, hversu miklir hagsmunir eru þarna á ferðinni.  T.d. hversu margir sækja ferðir félagsins til Hagavatns á hverju ári og munu þær ferðir leggjast alfarið af, ef af framkvæmdum verður.

FÍ segir: " Virkjunarmenn oftúlka landgræðsluávinning af virkjuninni". Í fréttinni er þetta algjörlega órökstutt, en "virkjunarmenn" (og er þá væntanlega átt við sérfræðingateymi Landsvirkjunar og rannsóknir þess) hafa bara rangt fyrir sér.

Og svo er orkuvinningur dreginn í efa, þvert ofan í áralangar rannsóknir sérfræðinga á heimsmælikvarða á því sviði.

FÍ verður að gera betur en þetta ef það ætlar ekki að koma svipuðu óorði á sig og náttúruverndarsamtökum hefur tekist svo vel á undanförnum árum.


mbl.is Mótmæla virkjun við Hagavatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér sjáið þið aðdáanda Steingríms númer eitt

hr_edited-1
mbl.is Lítið fylgi kemur ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband