Gagnrýni á brauðfótum

Ferðafélag Íslands er að gera sömu mistök og náttúruverndarsamtök hafa ítrekað gert, en það er að rökstyðja mótmæli sín með eigin arðsemisútreikningum á fyrirhuguðum framkvæmdum.

Mér finnst rök FÍ fyllilega standa fyrir sínu, þ.e. að virkjunin vegi að hagsmunum félagsins. Það vantar hins vegar í rökin, hversu miklir hagsmunir eru þarna á ferðinni.  T.d. hversu margir sækja ferðir félagsins til Hagavatns á hverju ári og munu þær ferðir leggjast alfarið af, ef af framkvæmdum verður.

FÍ segir: " Virkjunarmenn oftúlka landgræðsluávinning af virkjuninni". Í fréttinni er þetta algjörlega órökstutt, en "virkjunarmenn" (og er þá væntanlega átt við sérfræðingateymi Landsvirkjunar og rannsóknir þess) hafa bara rangt fyrir sér.

Og svo er orkuvinningur dreginn í efa, þvert ofan í áralangar rannsóknir sérfræðinga á heimsmælikvarða á því sviði.

FÍ verður að gera betur en þetta ef það ætlar ekki að koma svipuðu óorði á sig og náttúruverndarsamtökum hefur tekist svo vel á undanförnum árum.


mbl.is Mótmæla virkjun við Hagavatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: eir@si

Á brauðfótum. Hefur þú kynnt þér hvort FÍ var með einhver frekari rök en kom fram í fréttinni? Það komu ekki fram nein sérstök rök í fréttinni fyrir því að það ætti að virkja frekar en ekki virkja.

Hins vegar varðandi ávinning af þessari tilteknu virkjun þá í rammaáætlun um virkjanakosti er hagkvæmni sett í 6 flokka og þessi virkjun lenti þar í næst neðsta flokkum. Hagkvæmustu virkjanirnar eru þar með áætlaðan stofnkostnað á móti orkugetu sem undir 27kr / kWh á ári á meðan flokkur 5 sem Hagavatnsvirkjun fellur í er með hagkvæmni 53-66kr /kWh á ári. Það er því alveg ástæða til að draga í efa ávinninginn af þessari virkjun.

Ertu annars að vísa í einhverjar sérstakar "áralangar rannsóknir sérfræðinga á heimsmælikvarða á þessu sviði"?

eir@si, 15.2.2012 kl. 09:02

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég segi "Í fréttinni er þetta algjörlega órökstutt".

Ég þekki vinnulag LV og vísindamenn fyrirtækisins á sviði virkjanaframkvæmda eru á heimsmælikvarða. Nefnt hefur verið að mannauðurinn sem í þeim felst, geti orðið verðmæt útflutningsgrein í framtíðinni en það gerist auðvitað ekki ef öfgasjónarmið í náttúruvernd, með stuðningi vinstriflokkanna, fær að ráða för.

Gunnar Th. Gunnarsson, 15.2.2012 kl. 11:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband