Ógeðsleg aðferð

Ég varð einu sinni vitni að því þegar nokkrir hrútar voru geltir með töng, ódeyfðir.

Það var skelfileg upplifun að heyra greyin rymja af kvölum og hljóðið sem kom þegar verið var að merja í sundur taugarnar sem liggja niður í punginn, var vægast sagt hryllilegt.

burdizzo%201

Geldingartöng.  "The burdizzo is a metal instrument that severs or crushes the cords and associated blood vessels leading to the testicles. This stops the blood circulation to the testicles so that they degenerate within the scrotum. This is also a bloodless method of castration. When using this method, be sure that both cords are severed or crushed. The cords are located above the testicles"


mbl.is Ekki má gelda með hrúta- eða kálfatöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leiðinleg Kara - myndbandið

Kara DioGuardi hefur alltaf farið nett í taugarnar á mér. Ég veit ekki alveg hvað það er.... ætli það sé ekki aðallega hvað hún segir og gerir.... og hvernig hún lítur út Happy


mbl.is Baðfataatriðið breytti ferlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sænskur og norskur klíkuskandall

Allir vita um hin gríðalerlegu ítök sem Svíar hafa í hinum ýmsu alþjóðlegum íþróttahreyfingum, ekki síst í handbolta. Og nú er Norðmaður forseti EHF.

Ég veðja á að bæði Norðmenn og Svíar séu í öðrum styrkleikaflokki og að þau kæri sig ekki um að spila á móti okkur í undankeppninni. Þess vegna erum við sett í þennan styrkleikaflokk, sem er algjörlega út í hött. Við erum klárlega með eitt af 5 bestu liðum í heimi.

Ég var að reyna að finna hver þessi 10 lið það eru í fyrsta styrkleikaflokki GetLost

Þetta er klíkuskandall

Hér að neðan er myndband af 20 bestu handboltamönnum heims um þessar mundir. Íslendingar eiga þar 3 leikmenn, Alex, (10. sæti) Guðjón Val (3. sæti) og Óla Stef.    (2. sæti)   Karabatic er efstur á blaði.

 Leikmennirnir skiptast á eftirtaldar þjóðir:

  • Frakkland - 4
  • Ísland - 3
  • Þýskaland - 3
  • Króatía - 3
  • Spánn - 2
  • Svíþjóð 2
  • Danmörk - 1
  • Pólland - 1
  • S-Kórea - 1

Svo eigum við a.m.k. 2 þjálfara sem komast á topp 20 lista yfir þá bestu, Gumma og Alfreð.

 


mbl.is Ísland ekki meðal bestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breiðavíkurharmleikurinn - staðreyndir

Ríkisstjórnin, þjóðin, þolendur og gerendur verða nú að snúa bökum saman í að kveðja þennan "Breiðavíkurharmleik", í þeirri fullvissu að svona nokkuð gerist aldrei aftur.

072

Þessa mynd tók ég af Breiðavík á ferðalagi mínu um Vestfirði síðasta sumar.      Takið eftir hvernig ríkjandi vindátt "litar" hlíðina á afmörkuðu svæði.

Ps. Minni á skoðanakönnun hér til hliðar.


mbl.is Staðfesting á tjóni vistmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakönnun

Hér kemur niðurstaðan úr skoðanakönnuninni sem ég hef haft á síðunni í þó nokkurn tíma. Niðurstaðan rímar við niðurstöður frá "virtum" skoðanakönnunarfyrirtækjum, en úrslit kosninganna urðu á allt annan veg. Í fersku minni er að "neiið" fékk 98% greiddra atkvæða.

Spurt var:

Eiga lög um Icesave sem Alþingi samþykkti, en forseti synjaði staðfestingar, að halda gildi sínu?
23,6%
Nei 76,4%
691 svaraði
Ég bendi á nýja könnun hér til hliðar.

Gott mál

Þetta hélt ég að ég myndi ALDREI gera! Að hrósa Álfheiði Ingadóttur!

En ég geri það hér með. Þetta á auðvitað að vera sjálfsagt mál.


mbl.is Samþykktu frumvarp um gjafaegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LSD tilraunirnar voru almennt ekki leynilegar

Ótal tilraunir voru gerðarar á fólki með LSD um miðja síðustu öld, bæði óbreyttum borgurum og hermönnum og það var ekkert leyndarmál. Það sem gerir þetta Pont-Saint-Esprit mál sérstakt, er auðvitað að þarna var heilt þorp dópað án íbúanna vilja eða vitundar.


mbl.is Gerði CIA tilraun með LSD á heilu þorpi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök í flugstjóraklefanum

Þegar flugstjórinn hafði lokið við að tala við farþegana í kallkerfinu eftir flugtak, þá gleymdi hann að slökkva á míkrofóninum. Hann spjallar við aðstoðarflugmanninn og samtalið heyrist í farþegarýminu:

"Ég ætla að fara að skíta", segir hann "og þegar ég er búinn að því ætla ég að reyna við ljóshærðu flugfreyjuna sem er nýbyrjuð".

Flugfreyjan heyrir þetta eins og aðrir og hleypur eftir ganginum að flugstjórnarklefanum til að segja flugstjóranum að kallkerfið sé enn á. Í flýtinum skrikar henni fótur og dettur á gólfið. Lítil gömul kona horfir niður til hennar og segir:

"Ekkert liggur á vina mín, hann sagðist þurfa að skíta fyrst"

learn-to-fly-here


mbl.is Vill lög á flugumferðarstjóra
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Svo mælir Tvíhöfði

asmiAð kysssa reykingamann er eins og að sjúga endaþarm á rotnandi líki sem legið hefur í stífluðu klóaki um nokkurra vikna skeið.

 

Ef við notum annað dæmi þá er að kyssa reykingamann ekki ósvipað því að láta berklasjúkling æla upp í sig kverkaskít, blóði og gallblönduðu hlandi eða sleikja mygluskán af rotnandi rottu sem legið hefur á úldnandi hundshræi um áraraðir. -Tvíhöfði...


mbl.is Tóbaksvarnir hafa haft áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin Álfheiður

crop_500xÞað er greinilega engin Álfheiður Ingadóttir eða ígildi hennar á Grænlandi, sem mýgur í brækurnar af geðshræringu yfir skotnum ísbirni.

Maður skyldi þó aldrei segja aldrei Errm


mbl.is Ísbjörn á rölti við blokkirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband