Stjórnarliðar reyna að koma inn þeirri söguskýringu að niðurstaða EFTA dómstólsins hafi verið tilviljun. Að málið hafi verið þannig vaxið að það hefði verið eins og að kasta upp krónu... "Skjaldarmerkið eða fiskurinn?".
Vísir menn bentu á að hvernig sem dómurinn hljómaði, þá væri niðurstaðan alltaf slæm fyrir ríki ESB, en þó sínu verri ef niðurstaðan hefði verið "full ríkisábyrgð á innistæðutryggingum, jafnvel í algjöru bankahruni" eins og varð hér. Slík niðurstaða hefði skapað óbærilegt ástand í bankamálum og ríkisfjármálum Evrópu. Skilaboðin hefðu verið til fjárglæframanna: "Hagið ykkur eins og þið viljið, ykkur verður bjargað af skattgreiðendum". Hversu líklegt er að þeim skilaboðum hefði verið komið á framfæri af EFTA dómstólnum?
Það eru ekki nema 3 mánuðir þangað til þetta fólk hrökklast frá völdum
Tilviljun hvernig Icesave-málið þróaðist | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 30.1.2013 (breytt kl. 17:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Katrín Júlíusdóttir, Iðnaðarráðherra var í viðtali strax eftir dóminn í stórum erlendum fjölmiðli og ekki kom styggðaryrði í garð ESB ríkjanna sem beittu okkur ofbeldi í þessari Icesave deilu.
Enn er þetta lið gagnslaust í málinu og nýtir ekki þá möguleika sem okkur bjóðast á silfurfati í öllum helstu fjölmiðlum veraldar í kjölfar dómsins, að koma málstað okkar á framfæri. Nei, heldur skal sleikja sig upp við ESB í von um silkihanskaviðtökur þegar skríða á í faðm ofbeldisseggjanna.
Íslenska þjóðin er gæfusöm að hafa haft samtök eins og InDifence og Advice og forseta Íslands sem komu í veg fyrir, ásamt þjóðinni, verstu pólitísku afglöp Íslandssögunnar.
Skelfing verður mikill léttir af brotthvarfi vinstrimanna úr valdastólum sínum.
Forsetinn vekur heimsathygli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 29.1.2013 (breytt kl. 23:44) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Ég man eins og gerst hafi í gær... hvernig Jóhanna og hennar lið fordæmdi synjun forsetans á síðasta Icesave-samningnum. Þá voru nöturleg orð látinn falla í garð Ólafs.
En nú eigum við bara öll að vera vinir og gleyma þessu... og fagna
Eigum ekki að leita sökudólga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.1.2013 (breytt kl. 21:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Nokkrir bloggarar láta kratapólitík villa sér sýn. Þeir virðast ekki geta fyrirgefið Ólafi að hafa unnið forsetaframbjóðanda Samfylkingarinnar í kosningunum í fyrra.
Fólk getur haft mismunandi skoðanir á því hvort forsetinn eigi yfir höfuð að tjá sig um utanríkismál.... ekkert að því. Það var hins vegar allt satt og rétt sem Ólafur sagði um Gordon Brown og viðbrögð hans við Icesave- málinu.
Þeir sem halda öðru fram eru ekki með fulla meðvitund.
Forsetinn ræðst að Gordon Brown | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það var yfirleitt venja að ríkjandi stjórnvöld urðu mest fyrir barðinu á höfundum Áramótaskaupsins. Það breyttist eftir að hin hreina og tæra vinstri stjórn tók við fyrir tæpum 4 árum.
Hvað segir það okkur? Að það sé satt sem sagt er um leikhúsfólk?
V-grænir eru flestir ánægðir. Þeir hafa þá eitthvað til að gleðjast yfir.
Færri ánægðir með Skaupið nú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | 23.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ögmundi hefur lengi verið illa við "gróðaöfl" og er til í nánast hvað sem er til að hefta þau. Það kemur því ekki á óvart að Ömmi kæmi "gróðaöflum" inn í klámumræðuna.
Nú þarf Ömmi að setja á laggirnar nefnd sem hefur það hlutverk að segja hvað íslenska ríkið á að leyfa þegnum sínum að skoða á netinu. Nefndin þarf að skilgreina hvað sé klám og hvað ekki.
Það verður brjálað að gera í þessari nefnd!
Klámtakmörkun ekki ritskoðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 23.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fyrirsögnin er bein tilvitnun í Davíð Oddsson í skemmtilegum viðtalsþætti Björns Bjarnasonar sem sjá má á ÍNN HÉR
Tilefni orða Davíðs voru formannsefni Samfylkingarinnar, þeir Árni Páll og Guðbjartur.
Fleiri segjast styðja Árna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | 19.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég hef miklar áhyggjur af sóknarleik liðsins hjá nokkrum liðsmönnum. Ég held að sóknarbrot (ruðningur) bara hjá Ágeiri Erni hafi verið 6.
Ég hef ekki trú á því að við vinnum Dani en ef við gerum það þá er eins líklegt að það dugi bara í annað sætið. Ef við töpum lendum við næstum örugglega í þriðja sæti riðilsins. Töluverðar líkur eru á að Þjóðverjar endi í þriðja sæti í sínum riðli sem þýðir að þeir spila við liðið í öðru sæti í okkar riðli. Túnis endar sennilega í öðru sæti á eftir Frökkum.
Ég vil frekar spila við Túnis í 16 liða úrslitum en Þjóðverja. Sérstaklega eftir að þeir misstu sinn besta mann úr keppninni eftir leik þeirra í kvöld.
Er þá ekki bara best að tapa fyrir Dönum og tryggja sér þriðja sætið í riðlinum?
Frábær vörn og markvarsla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 16.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það er alltaf hægt að vera vitur eftir á...
Ólafur Guðmundsson, Hafnfirðingurinn ungi hefur þungan kross að bera. Hann lét reka sig útaf á klaufalegan hátt í stöðunni 19-16 fyrir Ísland og Íslendingar með boltann. Hann fékk þar með rautt og ég furða mig á að hann hafi fengið að spreyta sig nógu mikið í svona mikilvægum leik til að fá þrjár brottvísanir.
Þetta var vendipunkturinn í leiknum og hinn góði taktur sem kom í upphafi síðari hálfleiks hvarf úr leik okkar manna. Íslenska liðið átti í heild frekar dapran dag og Ásgeir Örn var skelfilega lélegur. Þetta lið á ekki erindi nema í 16 liða úrslit.... því miður.
Björgvin valinn bestur í íslenska liðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | 12.1.2013 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mér finnst gaman að skoða myndskeið á youtube af uppistöndurum. Lengi var Jim Carrey í uppáhaldi hjá mér. Eitt minnisstæðasta atriðið með honum voru eftirhermur .... án orða! Andlit hans breyttist í Jack Nicholson, Clint Eastwood og James Dean. Makalaus andskoti.
Nú er Jimmy Carr hins vegar í uppáhaldi. Jimmy Carr / Jim Carrey, næstum eins
Spaugilegt | 12.1.2013 (breytt kl. 01:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 945812
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- MÍNIR MENN KLÚÐRUÐU LEIKNUM Á SÍÐUSTU FIMM MÍNÚTUNUM........
- Viðreisnarvilla vill leiða þjóð okkar afvega
- Nýju fjölmiðlarnir
- Hvers virði er fráfesting í þjónustu við fíknisjúka?
- Hvers virði er fráfesting í þjónustu við fíknisjúka?
- Reistir við af þjóðinni, til hvers.?
- Handtökuskipun ICC á Netanyahu og Gallant
- Erfitt að breyta stjórnarskránni - einfallt að breyta þjóðinni
- -geisp-
- Hver er beinþynningar tölfræðin