Alltaf sama sagan með Héraðsmenn

Héraðsmenn hafa lengi rennt hýru auga til svæðisstöðvar Vegagerðarinnar á Austurlandi sem rekin hefur verið á Reyðarfirði í tugi ára. Í mörg ár hafa þeir reynt að beita pólitískum þrýsingi og allskyns bolabrögðum til þess að ná þessu af Reyðfirðingum og það á reyndar við um fleiri fyrirtæki á fjörðum. Fjarðabúar mega þakka fyrir að halda bátum sínum, togurum og útgerðum "í neðra".

Fyrir nokkrum árum var skipuriti Vegagerðarinnar breytt og yfirstjórn hennar á Austurlandi var flutt til Akureyrar. Umdæmisverkfræðingur Vegagerðarinnar á Austurlandi, ásamt tækni og hönnunarliði, er þó enn á Reyðarfirði, enda húskostur þar ágætur. Þar er einnig vélaverkstæði.

vegagerd

Hér má sjá svæðisstöðvar  Vegagerðarinnar á landinu. Myndin fæst stærri með því að smella þrisvar á hana. Markmiðið með nýja skipuritinu, að færi yfirstjórnina frá Reyðarfirði til Akureyrar, var auðvitað hagræðing, en reyndin er þó sú í sumum tilvika að skilvirkni í ákvarðanatöku minnkaði. Milliliðum í ákvaðanatökum fjölgaði og forgangsröðun verkefna sett í hendur manna sem minni skilng hafa á staðháttum. Þetta seinkar ákvarðanatökum og bjagar forgangsröðun.

Um 30 manns vinna hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, þar af nokkrir verk og tæknifræðingar, auk iðnaðar og vélamanna.

Reyðfirðingar þurfa að standa vörð um fjölbreytta atvinnustarfsemi í bæjarfélaginu. Á Reyðarfirði hefur verið fjárfest á undanförnum áratugum í ágætri aðstöðu fyrir Vegagerðina og engin ástæði til þess að fórna því, enda Reyðarfjörður miðsvæðis á Austurlandi í öllu tilliti.

Bæjarbúar eiga að standa saman, allir sem einn og berjast gegn áformum Héraðsmanna um að véla þetta uppeftir til sín. Þeir hafa reynt það í mörg ár og þeim má ekki takast það.


mbl.is Vilja vegagerð og flugvöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið skelfing getur þú nú bullað stundum, það er ekki nema von að "hrepparígurinn" gamli haldist að fullu í gangi meðan til eru menn eins og þú gerir nú, sem  að kynda undir vitleysunni.  Ég hélt þú værir hafin yfir svona vitleysu.

(IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 08:43

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta er einfaldlega staðreynd, a.m.k. hvað Vegagerðina varðar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 09:50

3 identicon

Þú verður þá að uppfærða mig, því ekki kannast ég við það

(IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 10:18

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég vann hjá Vegagerðinni 2001-2005 og þetta var altalað innan stofnunarinnar

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 10:22

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hins vegar er ég alveg sammála þér í því að hrepparígur er aldrei til góðs.

Það að Hérðsmenn vilji fá sem flest fyrirtæki til sín er eðlilegt í sjálfu sér og bara jákvætt ef menn eru ötulir í þeirri viðleitni sinni.

En þegar málið er farið að snúast um pólitísk sambönd, þá fussumsveia ég.

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 10:28

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér var sagt að Vegamálstjóri o.fl. væru undir þrýstingi frá þingmönnum, sem aftur eru undir þrýstingi frá einhverjum aðilum sem eiga eitthvað inni hjá þeim.

-

Fussumsvei

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 10:32

7 identicon

Ekki finnst mér það nú góð rök að eitthvað hafi verið altalað þar inni.  Það hefur nú líka verið "altalað" að engin sé betri í hinum pólitísku samböndum  og plotti en ákveðnir aðilar hjá Fjarðarbyggð og það á frekar undirförulan hátt svo ætli það sé þá ekki bara jafnt á með komið.

(IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 10:35

8 identicon

Er atvinnuleysi á Reyðarfirði? Þið sitjið nú nánast ein að vinnu í álverinu og eruð vel sett þar þótt aðrir landsmenn greiði fyrir

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 14:35

9 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hef ekki ástæðu til að rengja helstu yfirmenn Vegagerðarinnar á Reyðarfirði, þegar þeir segja frá samskiptum við "yfirvaldið að sunnan"

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 15:24

10 identicon

Lyf við minnináttarkennd fást í Apótekinu á Reyðarfirði.

HStef (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 18:33

11 identicon

Ég ekki heldur Gunnar, hef það eftir mjög áræðanlegum heimiildum.

HStef hvaða lyf er það????

(IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 18:51

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Æja, þriðjungur starfsmanna álversins býr á Egilsstöðum. Það var ekkert atvinnuleysi á Reyðarfirði áður en álverið kom. Menn vildu hins vegar skapa traustan grunn til að sporna við fólksfækkun... og það tókst. Um 100 manns, af um 450 starfsmönnum álversins eru tækni og háskólamenntaðir. Þau störf lögðu grunninn að því að fólk með menntun sá sér fært að snúa til baka á heimaslóðir eftir nám í Rvk og erlendis.

-

Sigurlaug, hvað hefurðu samkvæmt "mjög áræðanlegum heimildum"?

-

Hstef... nú er það?. Þú talar væntanlega af reynslu

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 19:44

13 identicon

Ég endurtek spurninguna,er atvinnuleysi á Reyðarfirði?

Hvað fjölgaði mikið?

Hvað margir að snúa aftur á heimaslóðir?

Rósrauður bjarmi yfir þessu hjá þér

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 20:07

14 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er búinn að svara þér Æja. Þetta snýst ekki um atvinnuleysi. Lestu pistilinn betur.

Íbúum á Reyðarfirði fjölgaði um 80%

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 21:23

15 identicon

Það er málið,bara mylja undir íbúa Reyðarfjarðar,heildarhagsmunir breyta engu,alltaf sama viðhorfið hjá ykkur hægri öfgamönnum

Hafið þið engan metnað?

Æja Honkanen (IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 21:44

16 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hefði nú haldið að 750 manna vinnustaður væri ágætis metnaður  Auk þess er styrking byggðakjarna á Mið-Austurlandi, þjóðhagslega hagkvæm

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 22:09

17 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Ég sé ekkert að því að Hérar vilja hada áfram að vera með Vegagerðina í Fellabæ...........Gunnar sýslan bær ansi langt norður ekki satt,,,,,

Einar Bragi Bragason., 29.10.2009 kl. 23:06

18 identicon

Ég mun ekki nafngreina neinn í því frekar en þú gerir, enda yrði það til að ýta enn frekar undir rýg  sem er nóg af fyrir.

Æja ég get nú ekki séð að neitt hafi sérstaklega verið mulið undir Reyðfirðinga, þetta var einfaldlega besta staðsetningin fyrir þennan stóra vinnustað og þeir eru vel af honum komnir og megi vera svo áfram. Nær væri að samgleðjast þeim fyrir að hafa nóg vinnu í stað þess að vera alltaf með öfundartón sem engum er til góðs.  

Sem Skagfirskur Héri samgleðst ég þeim af öllu hjarta, en tek undir orð Einars að sýslan nær ansi langt norður og sé því ekki hagræðingu i því að leggja niður starfssemi vegagerðar í Fellum, nógu er nú langt að fara þó ekki verði bætt við það.

(IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 23:20

19 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér skilst að þetta snúist ekki bara um Vegagerðina í Fellabæ en Vegagerðin vill leggja þá starfsstöð niður og þessu svæði verði þá þjónað frá starfsstöðinni á Reyðarfirði. Annars er stefnan að bjóða allt meira og minna út. Það hefur þegar verið gert með vetrarþjónustuna á Oddsskarði og Fagradal. Vegagerðin sjálf er hætt að þjóna snjómokstri. Viðhaldið er sjálfsagt næst.

Fellabær er reyndar í annari Sýslu... er það ekki?

Gunnar Th. Gunnarsson, 29.10.2009 kl. 23:24

20 identicon

Annari sýslu en hvað?? hvað áttu við?

(IP-tala skráð) 29.10.2009 kl. 23:34

21 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fellabær er í N-Múlasýslu en Egilsst. og Reyðarfjörður í S-Múlasýslu

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.10.2009 kl. 01:01

22 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

A.m.k. eru sýslumörkin á Lagarfljóti. Getur svo sem verið að byggjðakjarnarnir sé báðir í N-M

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.10.2009 kl. 01:11

23 identicon

Gunnar minn það langt langt síðan þeim mörkum var breytt, við hér á EG heyrum undir N-Múl.

(IP-tala skráð) 30.10.2009 kl. 09:07

24 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

ok, mig rámaði líka í það.... svona eftir á að hyggja

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.10.2009 kl. 12:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband