Ný blogg-hausmynd

Ég er búinn að setja inn nýja hausmynd á bloggið hjá mér. Sú nýja er tekin af Eiði Ragnarssyni á Reyðarfirði. Myndin er tekin á ágústkvöldi uppi á "Skessu" og sér yfir Reyðarfjörð. Hann notar sérstakt forrit til þess að fá "Panorama".

_gust_hennig_ingi_255

Þessa mynd tók Eiður einnig og má finna á bloggi hans. Ég held að þetta sé ein myndanna í Panoramamyndinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Ég sé að Eiður er smekkmaður.  Færðu honum kveðju mína.  Það var fallega gert af honum að láta myndina ekki ná utar svo þjóðarskömmin sé utan myndar.

Jón Kristófer Arnarson, 4.8.2009 kl. 16:48

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Álverið er þarna, sést greinileg. Fjarðabúar mega þakka fyrir að hafa góða og örugga atvinnu, nokkuð sem margir aðrir landshlutar líta öfundaraugum til.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.8.2009 kl. 17:48

3 identicon

Flott mynd, ég er frekar ókunnugur þarna en segðu mér eitt, er þjóðargersemin þarna utar í fjörðinum og lítur út eins og lítið þorp?

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 20:34

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rosalega flott mynd.  Til hamingju með breytinguna.

Jóhann Elíasson, 4.8.2009 kl. 20:43

5 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Nú jæja, er þetta þarna lengst til hægri, gat verið.  En fjandi dýr voru þessi störf ykkar í neðra.

Jón Kristófer Arnarson, 4.8.2009 kl. 21:14

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er rétt Rafn.

Peningarnir voru ekki teknir úr öðrum verkefnum, Jón. Helmingurinn var auk þess borgaður af Alcoa, sem hlýtur að teljast ágætt.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.8.2009 kl. 21:57

7 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Þjóðarskömm eður ei, þetta fyrirtæki er þarna og það er engin ástæða til að fela það neitt.....

Ég reyndar velti því fyrir mér hver staðan væri hér í dag ef þetta hefði elli orðið að veruleika, sennilega væri íbúatala Austfjarða komin niðurfyrir 7.000 og annað hvert hús væri tómt...

Eiður Ragnarsson, 4.8.2009 kl. 23:39

8 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Og já álverksmiðjan er þarna yst á myndini eins og lítið þorp.

Eiður Ragnarsson, 4.8.2009 kl. 23:40

9 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Eiður Ragnarsson, 4.8.2009 kl. 23:42

10 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Og svona til að bera í bakkafullan lækinn þá er hér mynd tekin af Hádegisfjalli í maí 2008

http://picasaweb.google.com/Asbyrgi/SleAferKistufellOgHDegisfjall#5204306425886195746

Eiður Ragnarsson, 4.8.2009 kl. 23:49

11 Smámynd: Steingrímur Helgason

Jahéddna, meira að zegja hægt að 'fóthózjoppa' Reyðarfjörð þannig að við fyrztu zín lítur þetta út fyrir að vera dægjilega byggilegt bæjarfélag.

Tæknin, drengur, tæknin...

Steingrímur Helgason, 4.8.2009 kl. 23:51

12 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Eiður.

Það þarf ekki fótósjoppun til Zteingrímur

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.8.2009 kl. 00:56

13 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Góður Zteingrímur he he

Einar Bragi Bragason., 5.8.2009 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband