Atli Guðnason

18FH-ingurinn knái, Atli Guðnason er besti leikmaðurinn á Íslandi í dag en fær ekki séns í landsliðinu. Ef skoðuð er tölfræði leikmanna í efstu deild þá sést að hann á langflestar stoðsendingar allra, auk þess að skora slatta sjálfur.

Hvað þurfa menn að gera til að komast í landsliðið? Það virðist nóg að verma varamannabekk hjá miðlungsliði í útlöndum.


mbl.is Atli Viðar valinn í landsliðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Með fullri virðingu fyrir íslenskri knattspyrnu þá eru "varamannabekkir miðlungsliða í útlöndum" oft talsvert sterkari en aðalliðin hjá íslenskum liðum. Hvort Atli Guðnason eigi að vera í landsliðinu ætla ég hins vegar ekkert að segja af eða á um. 

Gulli (IP-tala skráð) 4.8.2009 kl. 15:48

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Menn sem verma varamannabekkinn alla jafna, t.d. hjá miðlungsliði í Noregi, eru ekki í neinni leikæfingu og þeir sem skara fram úr hér heima eiga frekar að fá sénsinn.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.8.2009 kl. 16:27

3 identicon

Og hvernig ert þú skyldur honum Atla........ Gunnar?

Raunsær (IP-tala skráð) 5.8.2009 kl. 13:12

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er pabbi hans

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.8.2009 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband