Formannskrísan kristallast - örvænting

jhanna_sigurardttir_jpg_550x400_q95Vitleysisgangurinn í Samfylkingunni ríður ekki við einteyming. Tvö helstu formannsefni þessa margflokka fyrirbæris er Jóhanna sem fer á eftirlaunaaldur í október nk. og hitt efnið, Jón Baldvin er á áttræðisaldri. Svo bíður pólitískur spjátrungur á hliðarlínunni, Dagur B. Eggertsson, maðurinn sem talar með þumlunum út í hið óendanlega án þess að segja neitt. En hann bíður átekta eftir ákvörðun Jóhönnu og tekur ekki afstöðu fyrr en hún hefur talað.

Það er merkilegt að flokkur sem nýtur stuðnings tæplega þriðjungs þjóðarinnar, skuli ekki hafa mannval til forystu. Forystulaus flokkur er óstjórntækur.

Guð blessi Ísland.


mbl.is Beðið eftir Jóhönnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég held að þetta geti ekki orðið vandræðalegra .

Jóhann Elíasson, 11.3.2009 kl. 09:55

2 identicon

Það er eki gott að hleypa hverjum sem er í hvaða embætti sem er. Það gæti bara orðið til þess að gera viðkomandi siðblindan, sjóndapran og skilningslausan. Viðkomandi gæti haft hug á því að tryggja sér hin og þessi embætti á ca 20 ára starfsferli, ótal fríðindi (frí-indi) og eftirlaun sem láglaunapakkið í landinu svíður mest að borga. Slíkt vill enginn fallega hugsandi einstaklingur.

Kjósandinn (IP-tala skráð) 11.3.2009 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband