Fyrir daga kvótakerfisins, voru kjördæmapotsþingmennirnir í bankaráðum ríkisbankanna vanir að nota "pennastriksaðferðina" til þess að rétta kúrsinn á illa reknum sjávarútvegsfyrirtækjum. Slíkar aðgerðir hurfu með tilkomu kvótakerfisins og urðu síðar útilokaðar með einkavæðingu bankanna.
Nú er rökrétt að almenningur losi sig við síbyljustöðina Rás 2. Afhverju á almenningur að borga fyrir slíka þjónustu þegar einkageirinn er fullfær um það? Ég er fullsáttur við gömlu gufuna sem ríkismiðil.
Afskrifa 123 milljóna skuld RÚV við ríkissjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Menning og listir | 15.12.2008 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 8
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 61
- Frá upphafi: 946013
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 56
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Sigurgeirar á feisinu valda Kenya-mönnum andlegum erfiðleikum
- Einlæg ást og eindrægni!
- Hvers konar borg erum við að fá?
- Öllu lofað, til hægri og vinstri
- Svartir blettir í sögu Samfylkingarinnar
- Öfgar til vinstri kalla á öfga til hægri
- -smáræði-
- Að horfa á snillinga látast í beinni er þyngra en tárum taki
- Bængagsins...Viska fátæks manns..
- Var engin kristnitaka árið 1000?
Athugasemdir
Gömlu Gufuna og eina lands-sjónvarpsstöð, Takk! - Eðlilegt að það kosti nokkuð mikinn skattpening, eins og samgöngur og annað sem styrkir samband þjóðar í stóru landi. Verð að segja að hrokafullur, oflaunður (allt að því ofdekraður) stjórinn fer 'pínu-aggalítið' í taugarnar á mér. Kveðja
Hlédís, 15.12.2008 kl. 18:07
Sammála með ljósvakamiðlana og að útvarpsstjóri er oflaunaður. En ég held samt að hann sé ágætur stjórnandi. Hann á a.m.k. ekki að fá borgað fyrir að vera á vinsældaveiðum.
Gunnar Th. Gunnarsson, 15.12.2008 kl. 20:34
"Slíkar aðgerðir hurfu með tilkomu kvótakerfisins og urðu síðar útilokaðar með einkavæðingu bankanna. " Hvaða rugl er þetta Gunnar, ertu ekki að fylgjast með ? Nú er talað um að vegna mikilla skulda sjávarútvegsins sé kvótinn að komast í hendur erlendra kröfuhafa, og samkvæmt LÍÚ um daginn eru þeir í viðræðum og langt komnir með að fella niður skuldir við gamla landsbankann. Furðulegt að þokkalega lesnir menn skuli hrósa kvótakerfinu, kerfi sem greinilega hefur ekki verndað fiskistofnana, ekki stuðlað að atvinnu á landsbyggðinni, kerfi sem hefur drepið niður haghvæmasta rekstarformið, kerfi sem útilokar nýliðun, kerfi sem hefur aukið skuldir sjávarútvegs hrikalega síðustu ár, o,fl ofl, . Og að auki er að margra mati þetta kerfi sem kom á þessu græðgis og óhófs- kerfi sem nú hefur hrunið. Og ef þú telur þetta samt það besta þá er bara hægt að benda á Færeyjar sem dæmi um betra kerfi, eins segir það eitthvað að enginn hefur tekið þetta kerfi upp eftir okkur, í sömu mynd og við höfum.
Birgir (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 12:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.