Frostrósir á Eskifirði

Kraekj3Ég hefði alveg viljað vera á jólatónleikum Björgvins, en ég fékk í staðinn frábæra tónleika með Frostrósum og gestum í Kirkju og menningarmiðstöðinni á Eskifirði í kvöld. Frábærar raddir hjá söngkonunum þremur, þeim Heru, Margréti Eir og Guðrúnu Árný. Persónulega er Guðrún Árný í mestu uppáhaldi hjá mér, hún hefur svo fallega mjúka og tæra rödd og smekklegt víbradó. Svo er hún líka svo sæt InLove

Allt var pottþétt á tónleikunum og hljómurinn í kirkjunni er með ágætum fyrir þessa tegund tónlistar. Ég fór á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands á sama stað fyrir nokkrum vikum síðan og hljómurinn var ekki nógu góður þá, sérstaklega fyrir hlé, en hann skánaði mikið eftir hlé, þegar dregin voru frá tjöld á hluta af veggjunum.

Ef ég ætti að setja einhvern mínus við flutninginn í kvöld, þá væri það helst að barnakórinn sem söng með í nokkrum laganna, fékk ekki að njóta sín alveg nógu vel. Míkrófónarnir hefðu mátt vera aðeins nær krökkunum. Auk þess hefði ég viljað heyra Jóhann Friðgeir Valdimarsson syngja "Ó helga nótt" með dívunum, þó þær hafi skilað laginu vel. Ég er kannski bara svona íhaldssamur, en lagið er sniðið fyrir góðan lýrískan tenór að mínu mati. Strengjakvartettinn sem spilaði með var óaðfinnanlegur, ásamt öðrum hljóðfæraleikurum og hljóðblöndun og styrkur þeirra miðað við söngin var afar fagmannlega útsett. Tvennir tónleikar voru haldnir og uppselt á báða.

004

Dífurnar á sviðinu í kvöld, ásamt Jóhanni Friðgeir og Edgar Smára.


mbl.is Jólalegt í Laugardalshöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband