Fáránlegt yfirklór

ráðherraÞó Forsætisráðherra sé yfirmaður Seðlabankans, þá er Björgvin yfirmaður bankamála. Það, að hann viðurkenni kinnroðalaust að hafa ekki hitt seðlabankastjóra í heilt ár, segir mér að hann skilji ekki sitt hlutverk sem ráðherra. Það er hlutverk ráðherra bankamála að sjá til þess að hann fái allar upplýsingar frá fyrstu hendi. Björgvin svaf Þyrnirósarsvefni í þægilegum ráðherrastólnum og sýndi með því vanhæfi í starfi.

Burt með Björgvin! 


mbl.is Björgvin: Spurningarmerki við Glitnisatburðarás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Eru samskiptin aðeins opin í annan endann?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.12.2008 kl. 13:25

2 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Dettur þér í hug að Björgin hafi eitthvað að segja í D.O, þann hákarl.  Hver heldurðu að boði hann á fund hér eða þar? Sést best á þessu hve arfavitlaust það var og er að ráða gamla harðjaxla úr pólítíkinni í embætti seðlabankastjóra. Það er ekkert jafnræði á milli ungra þingmanna og svona reynslubolta.  Hitt er annað mál að það þarf líka harðjaxla og reynslubolta í embætti bankamálaráðherra. Það hefði kannski farið öðruvísi ef svo hefði verið. En hver hefði dugað á móti D.O.?

Þórdís Bára Hannesdóttir, 6.12.2008 kl. 13:26

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Vissulega er D.O. hákarl og harðjaxl, en ég hefði haldið að ráðherra í ríkisstjórn þyrfti ekki að vera með neina minnimáttarkennd gagnvart honum. Ráðherra bankamála þarf ekki annað en að taka upp símann og panta viðtal.

Eins og ég sagði Axel, Seðlabankinn heyrir undir forsætisráðuneytið og væntanlega eru samskipti stjórans mest þangað. Annars er ég sammála því að fyrrv. pólitíkus á ekki að vera í embætti seðlabankastjóra, burt séð frá hæfi hans eða ekki. Það getur kannski gengið þegar allt er í lygnum sjó, en ekki þegar svona alvarlegar krísur koma upp.

Gunnar Th. Gunnarsson, 6.12.2008 kl. 13:45

4 Smámynd: Guðmundur Björn

Greyið hann Björgvin hefur sýnt þjóðinni hve mikil rola hann er og óhæft framkvæmdavald.  Hann veit ekki neitt og vill ekki vita af neinu. Það er eins og hann hafi ekki haft neinar skoðanir eða hugmyndir um mótun viðskipta- og bankamála þegar hann tók að sér ráðherraembættið. 

Hann átti bara að vera í áskrift.

Guðmundur Björn, 6.12.2008 kl. 22:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband