Tökum "Hómerinn" á þetta

  • Við notfærum okkur þessa svínbeygingu IMF á okkur, við öll möguleg og ómöguleg opinber tækifæri erlendis og ráðum til þess færustu P.R. fræðinga.
  • Við lýsum því óréttlæti sem þessi alþjóðlegi hjálparsjóður beitir okkur og hvernig stór ESB-lönd reyna að nota sjóðinn til þess að þvinga okkur og kúga. 
  • Við förum með Icesave-málið fyrir dómstóla og svíðum Bretana til skaðabóta svo nemur hundruðum eða þúsundum miljarða króna.
  • Við einbeitum okkur að nýjum marköðum og jafnvel að öðrum bandalögum á sem flestum sviðum alþjóðlegrar samvinnu, þ.m.t. varnarmálum.
  •  Við sýnum samheldni sem þjóð og sniðgöngum eftir bestu getu allar innfluttar vörur og spörum með því gjaldeyri og eflum innlendan iðnað.

Æ.... ég er svo reiður.

  • Búum til nýjan málshátt: "Reiðin kennir naktri þjóð að spinna".

bart_homer_gif


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

IMF er innheimtustofnun með alvarlega slagsíðu en ekki bjargráðasjóður. Það hefur berlega komið í ljós.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.11.2008 kl. 16:37

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Já, greinilega. Þetta er handrukkun af verstu sort.

Gunnar Th. Gunnarsson, 12.11.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband