Allt að því dómaraskandall

Logi Geirsson átti stórleik og skoraði 13 mörk í leiknum gegn Noregi. Um miðjan fyrri hálfleik þá fór ég að flakka á milli annarra sjónvarpsstöðva vegna vonbrigða með leik okkar manna en kom svo aftur inn þegar um 5 mínútur voru til loka hálfleiksins. Þá fannst mér örla á dálítilli von um að við fengjum eitthvað út úr þessum leik. Útafrekstrar dómaranna í leiknum voru úti í hött og bitnuðu skelfilega á íslenska liðinu. Sumir segja e.t.v. að svona sé dæmigerð heimadómsgæsla, en þetta á samt ekki að sjást í íþróttum.

Mestur hluti seinni hálfleiks var frábær af okkar hálfu og vendipunkturinn fannst mér þegar Guðjón Valur meiddist. Þá kom þetta "extra something" sem vantaði í hugarfar flestra leikmanna íslenska liðsins.

"Lemgo-proffen Logi Geirsson skulle vise seg å bli en kvise på Norges rumpe. Den teknisk fantastiske bakspilleren med den voldsomme skuddarmen banket inn hele 13 mål for Island" (Aftenposten)

Þessi úrslit fleyta okkur í úrslitakeppnina ef við vinnum heimaleikina á móti Norðmönnum og Makedónum.


mbl.is Ísland sótti stig til Noregs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dunni

Leikuinn var skemmtilegur í heildina. En það var  ekkert gaman að vera í Drammenhallen í fyrri hálfleik. Mikið sem fór úrskeiðis þá.  En seinni hálfleikurinn var náttúrlega bara frábær þegar tekið er tillit til þess hvaða leikmenn okkur vantað svo og að Guðjón Valur meiðist og Einar Hólmgeirs var nánast úr leik.

Hinn nýji þjálfari Norðmanna gerði sín mistök í seinni hálfleik. Sennilega vegna þess að hann þekkir ekki orðið liðið ennþá eftir 4 æfingar og einn leik.  En ef hann heldur áfram að frjósa eins og hann gerði í gær þá fær hann varla marga leiki með liðið.

Dómararnir!!  Það er nú full mikið að segja að þeir hafi verið skandall. En þeir voru okkur óhagstæðir fyrstu mínúturnar.  Annars fanns mér þeir komast sæmilega skammlaust frá hlutverki sínu.  Leikurinn var jú að mestu prúðmannlega leikinn.

Dunni, 2.11.2008 kl. 14:38

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Sammála með þjálfarann Robert Hedin. Hann gjörsamlega fraus í leiknum og það kom okkur til góða.

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.11.2008 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband