Hverju skal ná fram?

Óánægjuframboð í stjórnmálum spretta gjarnan fram á erfiðum tímum og það er slatti af óánægðu fólki á Íslandi í dag. Gallinn við óánægjuframboðin er sá að ekkert sameinar fólkið í raun, nema óánægjan. Engin sérstök hugmyndafræði sameinar fólkið, engin sameiginlega sýn á leiðir til úrbóta og jafnvel ekki sameiginleg sýn á markmið.

Sömu sögu er að segja um mótmælin að undanförnu. Um daginn urðu heiftúðugar deilur milli mótmælenda sem sökuðu hverja aðra um að stela glæpnum. Við svona aðstæður er mikilvægt að anda djúpt og telja upp á 100 þúsund. Stjórnmálakreppa er ekki það sem við þurfum í dag. Sumir segja "En það ER stjórnmálakreppa". Þeir hinir sömu munu sjá að orðið "stjórnmálakreppa" fær alveg nýja og óhugnanlega merkingu, ef kosið yrði til Alþingis í dag.

Þeim sem vilja mótmæla, er auðvitað frjálst að gera það. Sumir elska mótmæli og fá sennilega eitthvað svipað út úr því og fótboltabullur á knattspyrnuleik. Einhverskonar útrás og sameiningartilfinningu fyrir göfugum málstað en átta sig ekki á því að málstaðirnir eru margir, þó fólk leiðist hönd í hönd um stræti og torg.

coates_fig03b


mbl.is Efna til mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Og hvað með þá sem þola bara ekki núverandi ástand? Eiga þeir kannski bar að bíða eftir að það líði hjá af sjálfu sér?

Vésteinn Valgarðsson, 1.11.2008 kl. 13:32

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, þeir eiga að mótmæla í næstu kosningum

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.11.2008 kl. 13:38

3 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Í næstu kosningum verður of seint að mótmæla þessu vegna þess að þá verða þessir vargar búnir að selja okkur í skuldaþrældóm sem mun endast í margar kynslóðir. Ég ætla ekki að leggja það á barnabörnin mín að borga skuldir óreiðumann bara vegna þess að ég hafi ekki nennt að standa upp af rassgatinu til að láta í mér heyra.

Vésteinn Valgarðsson, 1.11.2008 kl. 13:57

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Mér heyrist nú á ráðamönnum að við munum EKKI borga óreiðuskuldirnar. En þrátt fyrir það verður auðvitað lífskjaraskerðing hér á næstunni og þú lagar það ekki með mótmælum eða kosningum í dag.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.11.2008 kl. 14:05

5 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Þetta er allt satt og rétt Gunnar. Eigðu góðan dag! :)

Viðar Freyr Guðmundsson, 1.11.2008 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband