Ný brjóst?

Ég hitti gamla kærustu á bar um daginn. Við höfðum ekki sést í áraraðir og ég tók strax eftir því að hún var komin með miklu stærri brjóst en hún hefði haft þegar við vorum saman. Viðskilnaður okkar á sínum tíma var ekkert sérlega vinsamlegur, en við vorum þó kurteisin uppmáluð við hvort annað. Þegar ég hafði spjallað við hana í smá stund, þá stóðst ég ekki mátið og sagði kvikindislega við hana: "Ég sé að þú ert búin að fá þér ný brjóst". Hún skynjaði háðið en jánkaði þó athugasemd minni brosandi og reyndi að leyna gremju sinni .

Eftir nokkurra mínútna samræður og gagnkvæmar spurningar um fréttir af sameiginlegum vinum okkar frá þessum tíma, þá fannst mér eins og hún væri farin að daðra við mig. Hún horfði á mig með sínu seyðandi augnaráði, hallaði sér að mér og sagði lágt: "Gunni, vissirðu að það eru til þrjár tegundir af fullnægingu?".

"Nú, er það?", svaraði ég hálf vandræðalega

"Já, þessi jákvæða", hvíslaði hún... "þú veist: ... Ó, já, Ó, já, já. Svo þessi Guðdómlega: ...Ó Guð, Ó Guð. Og svo þessi feikaða: Ó Gunni... Ó Gunni. Hún horfði á mig nokkur andartök til þess að sjá svipinn á mér meðan ég var að meðtaka þetta, svo labbaði hún tígulega í burtu.

Helvítis tíkin.

kista

 

 


mbl.is Bannað að sóla sig ber að ofan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Hahahahaha. Þú ert góður penni.

Róbert Þórhallsson, 1.11.2008 kl. 01:24

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 1.11.2008 kl. 01:27

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jóhann Elíasson, 1.11.2008 kl. 10:12

4 Smámynd: Rannveig H

Rannveig H, 1.11.2008 kl. 10:50

5 Smámynd: Ævar Rafn Kjartansson

Þú varst greinilega að spila rússneska rúllettu með 6 skot í byssunni!

Ævar Rafn Kjartansson, 1.11.2008 kl. 11:34

6 Smámynd: Landfari

Góður þessi

Landfari, 1.11.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband