BSK

Forsöngvarinn á Arnarhóli, Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður, var tilbúinn í blóðuga byltingu árið 1980 þegar hann var formaður BSK (Baráttúsamtök fyrir stofnun kommúnistaflokks). Þegar samtökin lognuðust út af þá gekk hann í Alþýðubandalagið og síðar í VG, þar sem hann er enn að því er ég best veit.

 


mbl.is Mótmæli á Arnarhóli vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Kristinsson

Hmmmm, kemur það eitthvað mótmælunum í dag eitthvað við?

Pétur Kristinsson, 11.10.2008 kl. 02:55

2 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Gunnar: Og hvað með það? Á fólk þá ekki að mótmæla vegna þess að Þorvaldur gæti verið á svæðinu?

Vésteinn Valgarðsson, 11.10.2008 kl. 03:47

3 identicon

Úff, við viljum ekki vera eins og hann. þá verðum við stimplaðir kommar. Ó nei, þá skulum við vera eins og restin af aulunum og kjósa þetta yfir okkur og súpa síðan seiðið af einkavinavæðingunni með bros á vör.

Grettir (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 04:28

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, það kemur ekkert mótmælunum við að öðru leyti en því að það er leitt að fólk sé teymt áfram af mönnum með afbrigðilegar pólitískar skoðanir. Ég þekki Þorvald og hann er fínn náungi... svona prívat. En hann er ekki vel til þess fallinn að leiða verkalýðs og stjórnmálabaráttu, né mótmæli almennings gegn óréttlæti. Til þess er kreddulaust og trúverðugt fólk betur fallið.

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.10.2008 kl. 04:31

5 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Ég þekki nú Þorvald líka og finnst ekki sanngjarnt af þér að kalla hann kreddufullan eða ótrúverðugan. Ef það er fólk þarna úti sem er betra í djobbið, megi það þá stíga fram og taka við því. En mér finnst ekki að þetta eigi að snúast um persónu Þorvaldar.

Vésteinn Valgarðsson, 11.10.2008 kl. 04:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband