Valdi koppur - koppahreiður

valdikoppurÉg fékk bílpróf árið 1977 þá 17 ára og við félagarnir sem stunduðuð rúntinn í Reykjavík grimmt á þessum árum kíktum reglulega til Valda ef við misstum kopp. Við vorum orðnir vel kunnugir Valda og hann spurði okkur stundum hvort við hefðum orðið varir við einhverjar holur í malbikinu á leiðinni uppeftir. Valdi var nefnilega útspekúleraður í koppafræðunum, hann vissi sem var að ef bílar keyrðu yfir ójöfnur þá voru meiri líkur á að kopparnir dyttu af og lentu í vegkantinum. Þar gat hann gengið að koppum vísum með reglulegu millibili. Ef við sáum holur í veginum þá sögðum við honum að við hefðum fundið koppahreiður. Slíkar fréttir kunni Valdi vel að meta.

Ég hef ekki séð Valda í eigin persónu í meira en aldarfjórðung en hann lítur nákvæmlega eins út í dag og þá, nema kannski að nú eru nokkur grá hár í yfirvaraskegginu hans.


mbl.is Koppabransinn riðar til falls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Þá kostadi koppurinn 5 kúlur..........500 kr.

Gulli litli, 25.9.2008 kl. 18:54

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það var nú vel hægt að prútta við Valda

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.9.2008 kl. 19:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband