Veit Saving Iceland af þessu?

Mynd 444559 Þurfa þeir ekki að sletta einhverju yfir fundargesti til þess að vekja athygli á þessum fyrirhuguðu voðaverkum?
mbl.is Samstarf um jarðhitanýtingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Tökum bara Bandaríkjamennina sem dæmi um það hvað um er að ræða. Í Bandaríkjunum er að finna mikla möguleika á hitaveitum og nýtingu jarðvarma þar sem íslensk tækniþekking getur hjálpað til.

Þetta er vafalaust mögulegt á þann hátt og á þeim svæðum þar sem umhverfisröskun er sáralítil og ekki um að ræða umturnun á verðmætum náttúrunýtingarsvæðum.

Öflugasta jarðhitasvæði Bandaríkjanna er í Yellowstone en allur annar jarðvarmi í Bandaríkjunum verður virkjaður áður en minnst verður á Yellowstone ef það verður þá nokkurn tíma gert, því að slíkt er ekki til umræðu vestra.

Ef svo ólíklega vildi til að það kæmi upp myndu samtök sem gætu fengið nafnið Saving Yellowstone líklega láta til sín taka.

Hinn eldvirki hluti Íslands er margfalt merkilegra náttúruundur en Yellowstone, - bara Torfajökulsvæðið eitt tekur Yellowstone fram og sömuleiðis svæðið norðan og norðaustan Vatnajökuls.

En við Íslendingar ætlum að hjálpa Bandaríkjamönnum til að varðveita náttúruundrið Yellowstone með því að fórna fyrir þá svæðum á Íslandi sem eru mun verðmætari.

Ég og fleiri andmælum þessu en fögnum sjálfbærri nýtingu jarðvarma án náttúrufórna.

Ómar Ragnarsson, 27.8.2008 kl. 13:03

2 Smámynd: Sigurjón

Hvar er hægt að nýta jarðvarma af einhverju viti án náttúrufórna?  Það þætti mér fróðlegt að vita...

Sigurjón, 27.8.2008 kl. 19:52

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Bandaríkjamenn hafa mun fleiri kosti til orkuöflunnar en Íslendingar og sumir eru mun umhverfis-óvænni en jarðhitanýting, s.s. brennsla kola, olíu og jarðgass. Einnig er kjarnorkan möguleiki hjá þeim og vatnsafl líka.

Allt kostir sem eru mun ódýrari og handhægari fyrir þá en jarðhitinn. Við erum ekki eins rík af möguleikum og verðum því að nýta það sem við höfum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.8.2008 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband