Næst versti kosturinn

Aðeins það að lenda á móti Frökkum hefði verið verra fyrir íslenska liðið. Möguleikar okkar gegn Frökkum eru ekki meira en ca 25%, 45 % á mótti Pólverjum, 50% á móti Spánverjum og 55% á móti Króötum.

Við höfðum alltaf tak á Júggunum hérna í gamla daga, á meðan Danir og Svíar áttu í erfiðleikum með þá. Leikstíll þeirra hentar okkur ágætlega, hann er vitrænn en ekki viltur. Króatar bera Júgóslavnesku handboltaakademíunni fagurt vitni og leikmenn liðsins eru margir hverjir listamenn í greininni. Vitleysisgangur úti á vellinum er ekki okkar tebolli og því höfum við oft átt í erfiðleikum með lið eins og Egypta, Alsýringa og Suður-Kóreumenn.


mbl.is Íslendingar mæta Pólverjum í 8-liða úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eru menn eitthvað svartsýnir?

Gat ekki verið betra, vinnum Pólverja 27 - 25 og spilum svo við Dani úrslitaleikinn um gullið og hverjir vinna, við loksins og lifum á því sem eftir er, ha ha ha :-)

Jens Markvörður

Jens G. Einarsson (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 22:04

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Nei, ég er nú eiginlega frekar bjartsýnn. Þetta gæti alveg gengið eftir hjá þér :-)

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.8.2008 kl. 00:30

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég man vel eftir þér, þú varst í ÍR, var það ekki?

Gunnar Th. Gunnarsson, 19.8.2008 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband