Skynsöm geðveiki

Róbert Gunnarsson skorar í leiknum gegn Argentínu í gær. "Gamla íslenska geðveikin", er auðvitað það sem hefur haldið í okkur lífinu hér á klakanum undanfarnar aldir. Við megum samt passa okkur að láta ekki reka okkur mikið út af. Menn fóru út af fyrir litlar sakir í gær á móti Argentínumönnum og það getur reynst okkur dýrkeypt á móti Pólverjunum.

Geðveikin þarf að birtast í gríðarlega hreyfanlegri vörn sem kemur vel út í skytturnar og hún þarf að birtast í grimmd og greddu í sókninni. Vera vakandi fyrir fráköstum og slíku. Og svo þurfa markverðir okkar auðvitað að eiga góðan leik. Vonandi kemur Einar Hólmgeirsson sterkur inn, okkur veitir ekki af því. Það er hrein unun að sjá hann hamra boltan í netið, það eru fáar skyttur jafn skotfastar og hann. Arnór Atlason þarf að koma líka, leikurinn í gær gefur vonir um að þessar skyttur gætu hrokkið í gang í dag.

Ef við vinnum Pólverjana í dag þá getum við tekið Svía-leikinn sem létta æfingu á morgun fyrir Slóvakíu-leikina, því jafntefli Svía og Pólverja í gær voru eins og eftir pöntun. Við þurfum bara að vinna aðra hvora þjóðina til að tryggja okkur á Ólympíuleikana í Peking, vegna þess.

Áfram Ísland !


mbl.is Þurfum gömlu íslensku geðveikina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband