Húnninn orðinn forseti

Björn þakkar Guðfríði Lilju, fráfarandi forseta, fyrir vel... Einhverntíma sá ég á blogsíðu Snorra Bergssonar  skákmanns og sagnfræðings, gælunöfn nokkurra skákmanna á Íslandi. Mig minnir að Björn Þorfinnsson sé kallaður Húnninn (sb. bjarnarhúnn, held ég, varla hurðarhúnn Joyful)

Mér er minnisstætt þegar ég tók þátt helgarskákmóti á Egilsstöðum fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan. Bróðir Björns, Bragi, var þar á meðal keppenda, þá um 12-13 ára gamall. Ég dróst á móti honum og þegar strákurinn settist á móti mér með bland í poka í höndunum, frekar lítill eftir aldri, þá var ég ákveðinn í að reyna að komast skammlaust frá viðureigninni. Ég vissi að strákurinn var þræl sleipur, enda einn efnilegasti skákgutti landsins. Skemmst frá að segja, þá rúllaði hann mér upp á háðuglegan hátt.

Ég tefldi einnig á móti Helga Ólafssyni stórmeistara, og gekk í rauninni betur á móti honum fannst mér. Komst þokkalega út úr byrjuninni en þegar líða tók á miðtaflið settist Helgi í þunga þanka og hugsaði í dágóða stund. Skákirnar voru með 25 mínútna umhugsunartíma og ég var farinn að gera mér vonir um að Helgi myndi lenda í tímahraki með þessu áframhaldi. Svo lék hann og ég svaraði skömmu seinna grunlaus. Í framhaldinu virtist Helgi leika að því er virtist án umhugsunar, en þá var hann auðvitað búinn að hugsa þetta til enda nánast, í þungu þönkunum. Staða mín hrundi á undraskömmum tíma og ég lagði niður vopnin. Skemmtileg upplifun engu að síður Errm


mbl.is Björn Þorfinnsson nýr forseti Skáksambands Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég veit ekki betur en Björn Þorfinnsson sé sonar sonur Björns Pálsonar fv. Alþingismanns frá Löngumýri  A- Húnavatnssýslu. Í skjaldarmerki A-Hún. er ísbjarnabirna með tvo húna. Kannski er gælunafnið ættað þaðan.

Sýslumerki Austur-Húnavatnssýslu

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.5.2008 kl. 23:18

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Einmitt það já, takk fyrir þetta Axel

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.5.2008 kl. 00:10

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir þetta Benedikt. Já Torfi er greinalega ekki sáttur við þróun mála varðandi skákina á Íslandi. Mér fannst hann nú hafa sitthvað til síns máls varðandi árangur og styrk íslenskra skákmanna undanfarin ár.

Ég gleymdi að setja inn í könnunina bæði höfuðborgarsvæðið og Suðurnes. Virðis ekki vera hægt að bæta því við eftirá. Verð bara að biðjast afsökunar á þessu

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.5.2008 kl. 15:29

4 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hey!... ég fæ ekki að setja lengur inn athugasemdir hjá Torfa fyrir það eitt að kalla eftir brandaranum!! Á maðurinn við andlega erfiðleika að stríða?

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.5.2008 kl. 16:02

5 Smámynd: Snorri Bergz

Hehe, hann kvartar manna mest yfir ritskoðun og heftingu á málfrelsi. En ég er líka í banni!

Hann hefur t.d. verið að hringja út um allan bæ og kvarta yfir að hafa verið settur í bann á http://www.taflfelag.is/spjall.

Það er reyndar rangt, því skráning hans var ófullnægjandi og fékk því að fjúka, en ég leiðrétti hann ekki þegar hann hélt að hann væri í banni.

En Torfi sjálfur beitir "ritstiðun", eins og Gunzó orðaði það. :)

En rétt Gunnar, Torfi á við andlega erfiðleika að stríða, amk að mínu mati.

Snorri Bergz, 4.5.2008 kl. 20:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband