Hagsmunir hverra?

Það væri gaman að sjá tölur um það hversu stór sá hópur er sem hefur verið að berjast fyrir hagsmunum sínum í þeim mótmælum sem átt hafa sér stað undanfarið. Ég held að sá hópur sé minni en margur heldur. Atvinnubílsstjórar á eigin tækjum eru í miklum minnihluta þeirra sem starfa í greininni. Lögin um hvíldartíma ökumanna voru sett til þessa að vernda bílstjórana sjálfa, ekki síst launamennina, og einnig til að vernda samferðamenn þeirra í umferðinni.

Að stjórnvöld geri eitthvað sérstakt fyrir þessa vinnuveitendur og í sumum tilfellum einyrkja, umfram aðra hlýtur það að brjóta jafnræðislög. Hvað með aðra tækjaeigendur, leigubíla, garðyrkjumenn, bændur? Meigum við búast við að þessir aðilar hefti ferðafrelsi fólks á næstunni?

Ef stjórnvöld standa ekki við sína hlið varðandi hvíldartíma atvinnubílstjóra (hreinlætisaðstöðu við þjóðvegina, stærri hvíldarplön o.þ.h.) þá er það sjálfsögð krafa að úr því verði bætt og e.t.v. réttlætanlegt að skoða sektarákvæði á meðan svo hefur ekki verið gert. En þegar slíkar brotalamir hafa verið lagfærðar, er út í hött að gera minni kröfur hér en annars staðar um hvíldarákvæðin.

nokkrar staðreyndir um aksturs og hvíldartíma atvinnubílstjóra 

Læt hér fylgja með ótrúlega sögu úr umferðinni í Bandaríkjunum, alveg ótengt þessu málefni. Joyful (Nema bílstjórinn hafi ekki tekið eftir neinu vegna syfju)

Truck carries wheelchair on 50mph ride
  

A truck driver travelled for several miles along a US highway after unwittingly picking up an extra passenger when a wheelchair became hooked onto the front of his cab.

The handles of 21-year-old Ben Carpenter’s electric wheelchair became tangled in the grille of the lorry which had stopped briefly at a red light.

Horrified motorists alerted police as they watched the wheelchair hurtling along the two-lane highway in Michigan at speeds of up to 50mph Read story here

 

 


mbl.is Stofna hagsmunasamtök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband