Var að skoða miðann minn

Al Gore á Bessastöðum í kvöld. Ég var að skoða aðgöngumiðann á fundinn með Al Gore í Háskólabíói í fyrramálið. ´

8.00: Húsið opnað

8.30: Lárus Welding, forstjóri Glitnis

8.35: Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson

8.40: Al Gore, fyrrverandi varaforseti BNA

10.10: Fyrirspurnir

10.35: Fundarlok

Þarna er gert ráð fyrir 25 mínútna löngum fyrirspurnartíma. Það er spurning hvort Gore ætli að leika "Háll sem áll", en það hlýtur að vera vandræðalegt fyrir hann að svara fyrir slatta af villum í Nóbelsverðlaunastykkinu sínu, "An Inconvenient Truth". Myndin fer að verða "Óþægilegur sannleikur". Happy


mbl.is Margir sporna gegn breytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Þór Guðmundsson

Mér skilst, Gunnar, að fjórar spurningar hafi komist að og engin þeirra krítísk. Þú hefur sem sagt ekki komið þínum spurningum að? Ég heimta skýrslu um fundinn.

Friðrik Þór Guðmundsson, 8.4.2008 kl. 12:31

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held að þær hafi verið 3, og rétt, engin krítísk. Ég var á 4. aftasta bekk og fólk á þeim slóðum var ekki virt viðlits, bara það fremsta. Ég skrifa skýrslu um þetta á eftir

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.4.2008 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband