Mætti ég biðja um meiri gróðurhúsaáhrif?

 

Vorið ætlar að láta bíða eftir sér og ástandið víða er eins og í verstu vetrarveðrum. Guði sé lof og ríkisstjórninni, að byrjað verður á Oddsskarðsgöngum á næsta ári.

Ég fékk miða á morgunverðarfund Al Gore í Háskólabíói á þriðjudagsmorgunn. Það væri nú kaldhæðnislegt ef hann kæmist ekki til landsins vegna vetrarveðurs.... í apríl!!


mbl.is Öngþveiti á Oddskarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hvað æsingur er þetta!!!! - Apríl er nú bara rétt að byrja.   Á Norður- og Austurlandi hefur nú ekki þótt ástæða til að vonast eftir vorinu fyrr en líða tekur á maí. Auk þess sem alltaf má búast við hreti í maí og júní. - Líklega er þessi óþolinmæði núna komin vegna þess hve páskarnir voru óvenju snemma þetta árið.  - Þú verður nú ekki fyrir miklu tjóni þótt þessi Kani komist ekki til landsins. Hans þjóð hefur nú ekki verið til fyrirmyndar í umhverfismálum frekar en mörgu öðru - Það er líka vetur ennþá, samkvæmt dagatalinu.

Haraldur Bjarnason, 3.4.2008 kl. 17:10

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hehe... þetta er rétt hjá þér Haraldur

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.4.2008 kl. 17:27

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þetta eru kölluð Gore áhrifin:

Hvert sem Al Gore fer með boðskap sinn gerir óvenju kalt veður.

Það fer meira að segja að snjóa á stöðum þar sem aldrei snjóar.

Þumalputtareglan er: Alls ekki bóka sumarfrí á stað þar sem Gore er með fyrirlestur.

Sjáum svo hvernig veðrið verður í Reykjavík í næstu viku.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.4.2008 kl. 00:17

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þú hljómar bara eins og Danirnir sem fóru á nöprum degi í göngu um götur Kaupmannahafnar með spray-brúsa og úðuðu út í loftið, klæddir hawaii-skyrtum og stuttbuxum. Sé að áhrifa Murphys-lögmálsins gætir í Gore málinu.

Að öðru leyti tek ég gróðurhúsaáhrifin mjög alvarlega og auðvitað á ég ekki að vera að grínast með þetta, hmmm.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 4.4.2008 kl. 00:43

5 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Takk fyrir innlitið Anna

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.4.2008 kl. 11:23

6 identicon

Al Gore er fjöldamorðingi klæddur í jakkaföt.

Andri (IP-tala skráð) 5.4.2008 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband