Frelsi, jafnrétti, bræðralag

Boð, bönn og grimmilegar refsingar við brotum á þeim hefur verið aðalsmerki kyndilbera hinna göfugu hugsjóna sem í kommúnismanum fólust. Eftir því sem fleiri áttuðu sig og tóku að efast um að forsjárhyggjudæmið gengi upp, því minna varð frelsið og refsingarnar harðari. Mannleg og menningarleg eymd, í hvaða mynd sem hún birtist, var kennd við kapitaliska spyllingu og vestræna úrkynjun.

En þetta tengist ekki bara kommúnisma, heldur einræði fyrst og fremst. Í Írak lifðu synir Saddams í vellistingum praktuglega, í hrikalegu óhófi á vestræna vísu. Kvenfólk og áfengi og munaður sem veruleikafyrrt Hollywoodstjarna hefði varla haft hugmyndaflug í. Þeir lifðu lífinu sem yfirvöld lýstu sem "Heimur Satans".


mbl.is Klám úr safni Stasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Alltaf er nú að koma fram meira og meira sem dregur þessa hugmyndafræði , sem kommúnisminn var, á lægra og lægra plan - það endar með því að allir vakni til meðvitundar um hvað þarna var úrkynjað fyrirbæri á ferðinni og í framhaldi af því verður "endanleg jarðarför" á þessu ómannlega fyrirbæri.

Jóhann Elíasson, 1.4.2008 kl. 12:54

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég held reyndar að enn sé svolítið í að jarðarförin fari fram. Birtingarmynd þessarar hugmyndafræði sést enn hjá fólki sem reynir að milda ásjónu sýna með jafnaðarmannahugtakinu. Ekki það að allir jafnaðarmenn séu slæmir, en margir þeirra sem setja vinstri slagsíðuna á Samfylkinguna og flest VG fólk er steinrunnið í pólitík og sér þessa glæpamenn á myndinni hér að ofan í annarlegu ljósi. Einhverskonar rómantík og skálar við líkneski þeirra á hátíðisdögum eins og 1. maí.

Gunnar Th. Gunnarsson, 1.4.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband