Guðmundur Þórður Guðmundsson

Samkvæmt heimildum frá Bylgjunni þá verður það Guðmundur Guðmundsson fyrrv. landsliðsþjálfari sem tekur við liðinu. Guðmundur er góður þjálfari og ef honum finnst hann eitthvað hafa að gefa í djobbið, þá er sjálfsagt að gefa honum annað tækifæri. Það var jú hann sem kom okkur í umspilssæti á EM í Stokkhólmi fyrir nokkrum árum og ekki við hann að sakast að liðið sprakk á limminu í leikjunum við Svía og Dani. Breidd liðsins var einfaldlega ekki meiri en þetta.

Nú hillir hins vegar undir að við getum átt tvo kosti í hverri stöðu, svo framarlega sem vinstri vængurinn virkjast. Við eigum fjölbreytta skotmenn í stöðuna s.s. Loga Geirsson, Arnór Atlason, Garcia o.fl. allt menn sem geta líka leyst inn á miðjuna og jafnvel á línu líkt og Snorri Steinn gerir stundum. En það hefur fylgt einhver ólukka með okkar bestu leikmenn í þessari stöðu. Tíð og langvinn meiðsli hafa hrjáð menn og eins hefur Ólafur Stefánsson hægra megin, ekki fengið nægjanlegt  né stöðugt "backup". En ef Einar Hólmgeirson og áðurnefndir leikmenn vinstra megin eru heilir og í leikformi, þá er Ísland til alls líklegt á alþjóðlegum stórmótum, sérstaklega með Guðmund sem landsliðsþjálfara.


mbl.is Nýr landsliðsþjálfari kynntur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég tel að Guðmundur sé góður kostur en mér finnst nú svona innst inni að "Bogdan-kynslóðin" hafa haft fullmikil áhrif.

Jóhann Elíasson, 25.2.2008 kl. 15:56

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er alveg rétt Jóhann að hún hefur haft áhrif. Ég tel að við höfum gengið til góðs, götuna fram eftir veg.

Gunnar Th. Gunnarsson, 25.2.2008 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband