Þorrablót Reyðfirðinga

Þorrablót Reyðfirðinga var haldið í 90. sinn í gærkvöldi í Íþróttasal grunnskólans. Það bar yfirskriftina "Enn einn farsinn" (Traditional Icelandic "damaget" food festival).  Þetta er annað árið í röð sem blótið er haldið í íþróttasalnum. Ástæðan fyrir því að blótið var ekki haldið í Félagslundi í fyrra eins og hálfa öldina á undan var sú að búið var að breyti félagsheimilinu í bíósal og þó bíóið hafi nú lagt upp laupana, er húsið ekki tilbúið fyrir mannfagnaði og böll. Auk þess hefði Félagslundur ekki rúmað alla gesti gærkvöldsins en þetta var fjölmennasta blót Reyðfirðinga til þessa. 320 manns keypu miða á mat og skemmtiatriði sem 14 meðlimir þorrablótsnefndarinnar sáu um. Ný nefnd næsta blóts er kosin af fráfarandi nefnd en nefndin samanstendur af sex hjónum og tveimur einhleypum einstaklingum.

 Geymdir eru listar með nöfnum nefndarfólks og það væri gaman að vita hvort þeir séu til frá upphafi. Reglan hefur verið sú að aðkomufólk er ekki gjaldgengt í nefdina fyrr en eftir ca. 7 ára búsetu á staðnum (með einhverjum undantekningum). Ég hafði búið á Reyðarfirði í 10 ár þegar ég var kosin í nefnd fyrir árið 2000. Margir Reyðfirðingar sem komnir eru yfir miðjan aldur hafa verið kosnir tvisvar í nefnd.

Blótið var sérlega vel heppnað, en maður segir það svo sem eftir hvert blót. Óvenju margir góðir söngvarar voru í nefndinni að þessu sinni og má þar nefna Guðmund Frímann Þorsteinsson, Elías Geir Eymundsson, Glúm Kjartansson og hjónin Helga Magnússon og Elínu Jónsdóttur. Auk þess voru aðrir í nefndinni algjörlega frambærilegir söngvarar og komu margir skemmtilega á óvart. Húmorinn var með ágætum og salurinn hló mikið. Ég var tekinn fyrir í einum sketsanum. Guðmundur Þorsteinsson vann mikinn leiksigur í túlkunn sinni á mér og fór hamförum á sviðinu LoL. Ég er virkilega stoltur af því að nú hafi verið gerð leikgerð persóna úr mér og flutt opinberlega á sviði Joyful.

Hljómsveit lék svo fyrir dansi til kl. 4. Mér er lífsins ómögulegt að muna nafn hljómsveitarinnar nema það byrjar á "B" en hún samanstendur af mönnum úr Fjarðabyggð og þekkti ég þar Helga Magnússon söngvara Reyðarfirði (áður Norðfirði), forstöðumaður bílaumboðs Heklu á Austurlandi, Helga Georgs hljómborðsleikara Eskifirði tölvugúrú hjá Alcoa Reyðarfirði, Guðjón "Skuggi" gítarleikari og tónlistarkennari frá Skuggahlíð í Norðfirði og Þórhall "löggu" Árnason Eskifirði, bassaleikara og fyrrum Gildrumanns. Trommuleikarann þekkti ég ekki. Frábært blót og ball... að venju. Þetta er ómissandi þáttur í menningu bæjarins. Ég veit að svo er einnig á Eskifirði og á Norðfirði eru a.mk. tvö blót. Sveitablótið og svo hið landsfræga "kommablót", enda hvað á betur við í "Litlu Moskvu", en Þorrablót, kennt við kommanna?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heldurðu ekki bara að þessi síða hafi verið fyrst á listanum þegar ég gúglaði "Þorrablót Reyðfirðinga"!  Þetta var ansi góð skemmtun, nefndin klikkaði sko ekki og hjómsveitin BENCHMARK stóð sig bara ágætlega! Meira að segja ég komst að á sviðinu -en bara á mynd sem varpað var upp á tjald! Einhverjum fannst eins og ég væri að skamma þig á myndinni -ég man nú ekki fyrir hvað ég var að skamma þig...

Tinna Hrönn (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 16:15

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Gaman að þessu Tinna

Gunnar Th. Gunnarsson, 27.1.2008 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband