Ég botna ekkert í fólki....

Mynd 261839Ég botna ekkert í fólki sem lætur sér detta í hug að hægt sé að græða stórfé hugsunar og fyrirhafnarlaust. Ef það væri tilfellið, þá væru væntanlega allir moldríkir. Píramídafyrirtæki, keðjubréf og hvað þetta heitir allt saman. Vonandi var eitthvert forvarnargildi í Næturvaktinni á St. 2 hvað þetta varðar.

Á einhverri breskri síðu sem ég rakst á og varar við svona auðveldum hagnaðarleiðum segir eitthvað á þessa leið: "Ef þér berst tilboð um að hagnast, sem er of gott til að vera satt, þá er það ekki satt".


mbl.is Varað við fjársvikabréfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

en mundu að aka á 20 á álverslóðini he he var skammaður fyrir ofsaakstur þar í dag var örugglega á 30...vá........

Einar Bragi Bragason., 16.1.2008 kl. 20:43

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

 Já þeir taka öryggismál afar föstum tökum. Ég var tekinn á 40 í vinnubúðum Bechtel þar sem hámarkshraði var 30 og var settur í mánaðar straff inná svæðið. 6 dögum síðar var ég náðaður vegna fjölda mótmæla úr búðunum og refsingin stytt í viku. Ég fékk því að koma aftur inn í búðirnar daginn eftir náðunina. Eftir það sáu viðskiptavinir mínir um að ég gleymdi ekki hraðatakmörkunum innan búða, því annars þyrftu þeir að ganga nokkur hundruð metra niður undir þjóðveg, þegar þeir þurftu á þjónustu minni að halda.

Ég kynntist óhemju fjölda fólks þessi 3 ár sem bygginng álversins tók og margir eru eftirminnilegir. Ljúfar minningar.

Gunnar Th. Gunnarsson, 16.1.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband