Aukið jafnrétti eykur drykkjuhneigð kvenna

Norskar konur eru drykkfelldari en aðrar konur á Vesturlöndum. Þar er meðal annars kennt um að jafnrétti hefur aukist milli karla og kvenna í Noregi, og norskar konur taka nú meiri þátt í atvinnulífinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu norsku lýðheilsustöðvarinnar.

Þessa frétt sá ég á vísi.is. alkiHvað veldur? Er það samviskubit vegna heimilis og barna? Eða vegna þess að konur á framabraut fresta því fram eftir aldri að stofna heimili og eignast börn? 

En talandi um jafnrétti þá finnst mér jafnréttisumræðan oft á tíðum vera á villigötum, sérstaklega hjá feministum. Þær má stundum skilja þannig að einhver ill öfl vilji koma í veg fyrir jafnan rétt kynjana. Að einhverji vondir kallar rói að því öllum árum að koma í veg fyrir jafnrétti.

Konum væri meiri akkur í að hlusta á aðrar konur sem náð hafa árangri á sínu sviði og læra af þeim en að hlusta á svona neikvætt væl. Guðfinna Bjarnadóttir og Rannveig Rist eru gott dæmi um konur sem blása á að kynferði þeirra hafi verið þeim fjötur um fót.

Frétt um daginn að af 25 ríkasta fólki landsins væru aðeins 5 konur, vakti mig til umhugsunar. Ekki hefur þetta fólk auðgast á daglaunavinnu heldur á útsjónarsemi í fjárfestingum. Þar getur kynferði varla skipt máli. Eitthvert forskot virðast karlar hafa þarna á konur sem hlýtur að vera hægt að brúa. Sú brú er ekki kynjakvóti heldur hugarfarsbreyting kvennanna sjálfra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Zóphonías

Þetta hljómar eins og eitthvað sem langafi minn hefði kannski sagt í kring um 1920! Þegar konur vildu fara út á vinnumarkaðinn!  Inntakið í þessari færslu er einfaldlega "Jafnrétti kemur engum við nema þeim konum sem vilja það"      Það kemur náttúrulega karlvængnum af þjóðfélaginu ekki við það er allt í lagi svo lengi sem það pirri ekki karlpeningin!  Mikið vona ég að þú hugsir á nútímalegri hátt áður en þú skrifar næst

Zóphonías, 31.5.2007 kl. 12:25

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þú ert eitthvað að misskilja þetta Zóphanías

Gunnar Th. Gunnarsson, 31.5.2007 kl. 12:45

3 Smámynd: Kallaðu mig Komment

Sæll, þar sem þú óskaðir sérstaklega eftir þvi að fá að heyra útkomuna: http://komment.blog.is/blog/komment/entry/223260/

Kallaðu mig Komment, 31.5.2007 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband