Þá er þetta allt saman á hreinu og bloggheimar verða að finna sér annað ágiskunarefni. Það verður Spennandi að sjá málefnasamninginn á morgunn. Allir virðast mjög sáttir við hann og svo hljómar hann eins og tónlist í eyrum Péturs Blöndal. Vonandi að hann hafi sæmilegt tóneyra. Eitthvert kurr í Sjálfstæðiskonum vegna lítils hlutar kvenna í ríkisstjórninni og Sturla auðvitað spældur.
Allt eðlilegt...nema eitt atriði. Geir H. Haarde sýndi á sér nýja hlið þegar hann loks fékkst út úr skrifstofu sinni eftir eins og hálfs tíma setu með Þorgerði Katrínu og Árna Mathiesen eftir að hann tilkynnti ráðherraval sitt. Þegar fréttamennirnir þustu að honum, virkaði hann pirraður og þreyttur og alls ekki eins ánægður og kollegi hans í Samfylkingunni. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með framkomu Geirs í garð fréttamannanna. Ég geri þá kröfu til hans nú sem hingað til að hann sýni fréttamönnum, sem eru jú tengiliður okkar almennings við þessi merku tímamót, þá virðingu að strunsa ekki í burtu frá hálfkláruðu viðtali. Jafnvel þó honum finnist spurningarnar innihaldslitlar og vitlausar. Svona framkomu vil ég ekki sjá...heyrirðu það Geir?
Guðlaugur Þór: Hlakka til að takast á við verkefnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 17
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 48
- Frá upphafi: 946168
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Sakamál
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Skoðanakannanir
- Spaugilegt
- Stjórnmál og samfélag
- stóriðja og virkjanir
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tónlistarspilari
Nýjustu færslurnar
- Komið að snjóhulunni
- Hvað er orðið eftir?
- Þá byrjar ballið með darraðadansi amtkvenna Evrópusambandsins
- Rapparinn Roseanne
- EES-rafmagn og hveiti
- Eru fjölmiðlar að ná að forðast eigin dauðdaga?
- Uppeldisfræðileg nýlunda
- Þá sýndu þeir okkur hvernig til dæmis 20.000 atkvæða lækkun varð á atkvæða tölu Trump á skjánum og 20.000 atkvæði bættust við hjá mót frambjóðandanum. Þetta voru mismunandi tölur nokkrum sinnum.
- Tískuvika herra fyrir haust.vetur 2025 - 26 hafin í Mílanó
- ,,Fylgiríki Bandaríkjanna ?
Athugasemdir
Ég tók líka eftir þessu með Geir. Hann er yfirleitt svo kurteis og almennilegur við fréttamenn. Kannski hefur hann verið hræddur við að Inga Jóna húðskammaði hann þegar hann kæmi heim fyrir hvað væru fáar konur í ríkisstjórninni.
Þorsteinn Sverrisson, 23.5.2007 kl. 08:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.